Dvalartími leikskólabarna í Kópavogi hefur styst

Fréttir|15. febrúar 2024

Meðaldvalartími barna í leikskólum Kópavogs er 7,5 klukkustund á þessu skólaári en var 8,1 klukkustund fyrir ári. Breytingar voru gerðar á skipulagi og starfsumhverfi leikskóla í Kópavogi síðasta haust og hefur ekki þurft að loka deildum vegna manneklu það sem af er skólaárinu.

Sú nýlunda var tekin upp í leikskólum Kópavogs síðasta haust að boðið var upp á gjaldfrjálsan leikskóla í sex stundir á dag. Á sama tíma var boðið upp á sveigjanleika í skráningu dvalarstunda og tekjutengingu afsláttar af leikskólagjöldum. 

Þessi breyting þykir hafa verið til góðs og en markmiðið var einkum að auka stöðugleika og styrkja starfsumhverfi leikskóla. 

„Dvalartími barna í leikskólum Kópavogs hefur styst verulega eftir að breytingar á skipulagi og starfsumhverfi leikskólanna tóku gildi síðastliðið haust. Í fyrsta sinn um árabil er meirihluti barna í skemmri dvöl en átta tíma á dag. Þá hefur enginn leikskóli þurft að loka deildum það sem af er skólaárinu vegna manneklu og eru flestir leikskólar fullmannaðir. Meðal dvalartími barna eru 7,5 klukkustund á þessu skólaári samanborið við  8,1 klukkustund fyrir ári síðan. Hlutfall barna sem eru í átta tíma dvöl eða lengur hefur farið úr 85% í janúar 2023 niður í 49% í janúar 2024. Hlutfall þeirra barna sem eru í sex tíma dvöl  eða skemur  er nú 22% en fyrir breytingar var það hlutfall innan við 2%. Foreldrar og forsjáraðilar 46% barna hafa stytt dvalartíma barna sinna," segir í nýrri frétt á vef Kópavogsbæjar. 

Þar segir jafnframt að í kjölfar breytinganna þá hafi enginn leikskóli þurft að loka deild vegna manneklu en til samanburðar þá komu upp 212 tilvik á árabilinu 2022-2023 þar sem loka þurfti deild í leikskóla. 

„Kópavogsbær boðaði breytta stefnu og nýja hugsun í leikskólamálum í haust með það að markmiði að styrkja starfsumhverfi leikskóla og auka stöðugleika í þjónustu við barnafjölskyldur. Breytingarnar hafa skilað góðum árangri. Ekki hefur þurft að loka leikskólum vegna manneklu, dvalartími barna hefur styst sem dregur úr áreiti og álagi á bæði börn og starfsfólk. Betur gengur að manna leikskóla og flestir leikskólar eru fullmannaðir. Meðal þess sem vekur athygli er að tekjulægri heimili eru almennt ánægð með breytingarnar og eru líklegri til þess að nýta sér sveigjanlegri og styttri dvalartíma,“ segir Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs, í fyrrnefndri frétt á vef Kópavogs. 

 

Sveigjanlegur dvalartími þykir jákvæður

Til að meta áhrif breytinganna var lögð könnun fyrir foreldra og forsjáraðila sem og starfsfólk í desember síðastliðnum.

„Meðal niðurstaðna er að meirihluti foreldra og forsjáraðila telur sveigjanlegan dvalartíma jákvæðan fyrir skipulag fjölskyldunnar. Könnunin sýnir að tekjulægri heimili eru ánægðari með breytingarnar en þau tekjuhærri. Þá kemur fram að tæplega helmingur foreldra og forsjáraðila nýtir sér sveigjanleika í skráningu dvalartíma. Vinna er helsta ástæða þess að fólk nýtir ekki sveigjanleikann. 

Könnun meðal foreldra og forsjáraðila var lögð fyrir á íslensku og ensku og almennt ríkir mun meiri ánægja meðal þeirra sem svara könnuninni á ensku. Einnig geta þau frekar nýtt sér sveigjanleika eða alls 72% svarenda. 

Starfsfólk leikskóla er almennt ánægt með breytingarnar samkvæmt niðurstöðum könnunar. Meirihluti starfsfólks upplifir betri starfsanda og minna álag. Aukinn stöðugleiki birtist meðal annars í því að starfsfólk upplifir að það hafi meiri tíma með börnum og aukið svigrúm til að undirbúa faglegt starf," segir að lokum í frétt bæjarins.