Drögum úr hættu á smiti

Fréttir|28. febrúar 2020

Handþvottur er aldrei mikilvægari en nú þegar COVID-19 veiran dreifir sér um heiminn.

Embætti Landlæknis brýnir fyrir fólki að það kynni sér hvernig draga má úr líkum á því að smitast af COVID-19 veirunni, hver helstu einkenni eru og hvað beri að gera komi upp smit. Landlæknir fundaði með fulltrúum stéttarfélaganna á dögunum og biðlaði til þeirra að miðla upplýsingum til félagsmanna. Fulltrúi Kennarasambandsins sat fundinn. 

Við birtum því eftirfarandi upplýsingar frá Landlækni og vonum að þær komi að gagni. 

Hafa ber í huga

  • Handþvottur er mikilvægari nú en áður. Sömuleiðis er mælt með að spritti verði komið fyrir sem víðast. Fram kom á fundinum að andlitsgrímur veita falskt öryggi nema þær séu notaðar réttar og því ættu fyrirtæki og stofnanir ekki að birgja sig upp af grímum.
  • Veiran hagar sér í mörgu eins og inflúensa þar sem einkenni og smitleiðir eru svipaðar.
  • Einkenni líkjast helst inflúensusýkingu - hósti, hiti, bein- og vöðvaverkir og þreyta. Kórónaveiran getur einnig valdið alvarlegum veikindum á borð við öndunarfærasýkingar og lungnabólgu, sem koma oft fram sem öndunarerfiðleikar.
  • Hjá flestum er veiran/inflúensan fljót að ganga yfir en samt sem áður getur viðkomandi smitað lengi eftir og þurfa þeir sem veikjast að vera í sóttkví.
  • Sóttvarnarlæknir ræður nú fólki frá ónauðsynlegum ferðum til Suður-Kóreu og Írans, auk Kína og fjögurra héraða á Norður-Ítalíu. Þá er hvatt til sérstakrar varúðar þegar ferðast er til annarra svæða á Ítalíu, Tenerife á Spáni, Japans, Singapúr og Hong Kong. .
  • Í tengslum við nýjustu fréttir frá Tenerife hefur sóttvarnarlæknir og landlæknisembættið ekki ákveðið að vara við ferðum þangað og þeir einir sem dvöldu á tilteknu hóteli eiga að vera í tveggja vikna sóttkví við komuna til Íslands. Með sóttkví í slíkum tilfellum er átt við að vera heima og ekki í beinum samskiptum við fólk. Viðbragðsáætlanir hér á landi hafa ekki breyst.

Kynntu þér málið á vef Landlæknis

Upplýsingar fyrir börn og ungmenni