Dregið úr grímuskyldu og óheft útivist

Fréttir|17. nóvember 2020

Nemendur í 5. til 7. bekk grunnskóla þurfa ekki að bera grímu og tveggja metra nándarregla á ekki lengur við þennan hóp. Þá er grímuskylda kennara gagnvart börnum á leikskólaaldri og nemendum í 1. til 7. bekk afnumin.

Nýjar sóttvarnareglur í skólastarfi taka gildi á morgun. Meðal þess sem tekur breytingum er að skipulagt íþrótta- og tómstundastarf barna á grunnskólaaldri verður leyft; þó að hámarki þannig að ekki komi fleiri en fimmtíu börn saman í 1. til 4. bekk og að hámarki 25 börn í 5. til 10. bekk. 

Þá er heimilt að nemendahópar blandist á útisvæðum leikskóla og grunnskóla. Hinar nýju reglur gilda til og með 1. desember næstkomandi. 

Helstu reglur í leikskólum

  • Fullorðnir þurfa að gæta að 2 metra nálægðartakmörkum. Sé ekki unnt að tryggja 2 metra nálægðartakmörkun milli starfsfólks skal notast við andlitsgrímur.
  • Starfsfólki ber ekki skylda til að nota andlitsgrímur í samskiptum við leikskólabörn.
  • Ekki skulu vera fleiri en 10 fullorðnir einstaklingar í hverju rými, þó er starfsmönnum heimilt að fara milli hópa.
  • Ekki skulu vera fleiri en 50 leikskólabörn í hverju rými. Nálægðartakmörkun tekur ekki til barna á leikskólaaldri.
  • Ákvæði um blöndun hópa, grímuskyldu og nálægðartakmörkun gilda ekki á útisvæðum leikskóla.
  • Skipulagt íþrótta-, æskulýðs- og tómstundastarf barna á leikskólaaldri er heimilt, þó að hámarki 50 börn saman. Ekki þarf að halda sömu hópaskiptingu og í leikskólastarfi.

Helstu reglur í grunnskólum

  • Starfsfólk og nemendur í 8.–10. bekk þurfa að gæta að 2 metra nálægðartakmörkum. Sé ekki unnt að tryggja lágmarksfjarlægð skal það notast við andlitsgrímur.
  • Starfsfólki ber ekki skylda til að nota andlitsgrímur í samskiptum við nemendur í 1.–7. bekk.
  • Ekki skulu vera fleiri en 10 starfsmenn í hverju rými, þó er starfsmönnum heimilt að fara milli hópa.
  • Nemendur í 1.–7. bekk eru undanþegnir 2 metra nálægðartakmörkun sem og grímuskyldu.
  • Ekki skulu vera fleiri en 50 nemendur í 1.–4. bekk í hverju rými.
  • Ekki skulu vera fleiri en 25 nemendur í 5.–10. bekk í hverju rými.
  • Í sameiginlegum rýmum skóla, svo sem við innganga, í anddyri, á salerni og göngum, er heimilt að víkja frá fjöldatakmörkun og reglu um blöndun hópa að því gefnu að nemendur í 8.–10. bekk og starfsfólk notist við andlitsgrímu.
  • Á útisvæðum grunnskóla gilda ekki ákvæði um blöndun hópa, grímuskyldu eða nálægðartakmörkun milli nemenda.
  • Halda skal sömu hópaskiptingu nemenda í grunnskólastarfi, í félagsmiðstöðvum og á frístundaheimilum þannig að ekki verði blöndun milli nemendahópa.
  • Skipulagt íþrótta-, æskulýðs- og tómstundastarf barna á grunnskólaaldri er heimilt, þ.e. að hámarki 50 börn í 1.–4. bekk og að hámarki 25 í 5.–10. bekk. Ekki þarf að halda sömu hópaskiptingu og er í grunnskólastarfi.

    Sjá nánar í reglugerðum heilbrigðisráðherra um takmörkun á skólastarfi nr. 1110/2020 og nr. 1106/2020.