Draga framboð til varaformanns KÍ til baka

Fréttir|7. desember 2017

Halldóra Guðmundsdóttir aðstoðarleikskólastjóri og Þórunn Sif Böðvarsdóttir grunnskólakennari hafa báðar dregið framboð sitt til varaformanns KÍ til baka.

Halldóra Guðmundsdóttir aðstoðarleikskólastjóri og Þórunn Sif Böðvarsdóttir grunnskólakennari hafa báðar dregið framboð sitt til varaformanns KÍ til baka. Þær tilkynntu framboðsnefnd þetta bréflega í morgun.

Halldóra og Þórunn Sif lýstu yfir á fundi með frambjóðendum til varaformanns, sem fór í Gerðubergi á mánudagskvöld, að þær treystu sér ekki til að vinna með nýkjörnum formanni KÍ, Ragnari Þór Péturssyni, í kjölfar ásakana á hendur honum um kynferðisbrot. Þær sögðu að með þessu fælist ekki dómur um sekt eða sakleysi en trúverðugleiki hins nýkjörna formanns væri í húfi. 

Atkvæðagreiðsla um nýjan varaformann KÍ er hafin.