Doktorsritgerð um nýjar leiðir í starfsþróun kennara

Fréttir|8. mars 2016

Hjördís Þorgeirsdóttir kynnir doktorsritgerð sína frá Menntavísindasviði HÍ og Háskólanum í Exeter miðvikudaginn 16. mars kl. 15 í Hátíðarsal Háskóla Íslands. Rannsókn Hjördísar fjallar um hvernig hægt er að tengja saman starfendarannsóknir og starfsemiskenninguna til að efla starfsþróun kennara á Íslandi. 

Í kynningu segir eftirfarandi um rannsókn Hjördísar: 

„Ritgerðin fjallar um notkun starfendarannsókna og starfsemiskenningar til að efla starfsþróun kennara í íslenskum framhaldsskóla. Markmiðið með rannsókninni var að móta nýja leið fyrir starfsþróun kennara sem veitir þeim kjark og þor til að gera breytingar á starfi sínu. Rannsóknin var gerð með starfendarannsóknarhópi sem í voru tuttugu og einn starfsmaður og ytri ráðgjafi. Aðferðin sem var þróuð nefndi ég Breytingastofu. Athyglin beindist sérstaklega að togstreitu sem þátttakendur upplifðu í starfinu. Togstreitan birtist einkum á milli einstefnu- og tvístefnumiðlunar, á milli yfirferðar námsefnis og dýpri skilnings á efninu og á milli verkfæra sem ýmist gera nemendur að óvirkum eða virkum þátttakendum í náminu. Til þess að leysa þessa togstreitu hafa kennarar gert breytingar á starfi sínu sem beinast fyrst og fremst að því að auka virka þátttöku nemenda í námsferlinu í kennslustofunni og veita röddum nemenda aukið vægi.

Þátttaka í starfenda-rannsóknarhópnum ýtti bæði undir einstaklingsnám og samnám. Í gegnum námsferlið jókst hæfni og þor þátttakenda til breytinga á starfsháttum sem og hæfni þeirra og þor til þverfaglegs samstarfs. Breytingastofan þar sem starfsemiskenningin og starfendarannsóknir eru tengdar saman opnar nýja leið til að efla starfsþróun kennara og samstarf sem getur aukið varanlegar breytingar á kennsluháttum.“

Aðalprófdómari ritgerðarinnar var dr. Bridget Somekh áður prófessor við Manchester Metropolitan University, en auk hennar voru prófdómendur þau dr. Karen Walshe lektor við University of Exeter og dr. Jón Torfi Jónasson, prófessor við Kennaradeild, Menntavísindasviðs HÍ. Hann mun kynna niðurstöðu prófdómenda við vörnina sem fram fór við University of Exeter 14. desember 2015 og ræða við Hjördísi um efni ritgerðarinnar. Leiðbeinendur voru dr. Keith Postlethwaite, University of Exeter, dr. Nigel Skinner, University of Exeter og dr. Hafþór Guðjónsson, Háskóla Íslands.

Dr. Jóhanna Einarsdóttir sviðsforseti Menntavísindasviðs stýrir athöfninni. Allir velkomnir.