Djúplestur og digital-heimurinn

Fréttir|10. október 2014

Ég sat á dögunum fyrirlestur Dr. Maryanne Wolf sem hún kallar „We were never born to read“. Maryanne hefur rannsakað lestrarferli og lestrarerfiðleika barna út frá taugalíffræðilegum þáttum. Í fyrirlestri Maryanne kom skýrt fram að lestur er flókið lært ferli og okkur alls ekki eðlislægt.

Það sem vakti mesta athygli mína voru áhyggjur hennar af minnkandi djúplestri vegna vaxandi „digital-heimi“ í lífi barna. Fyrir þá sem ekki vita er neysla tölvuleikja og sjónvarps oft kölluð „digtal-heimurinn“. Djúplestur er hins vegar sá lestur sem gerir okkur kleift að skilja og kryfja efnið betur og bæta þannig við reynslu okkar og tilfinningar í lestrinum.

Maryanne sagði frá rannsóknum sem sýna að aukin neysla á hverskyns „digital-heimum“ dregur verulega úr djúplestri. Hún varpaði fram þeirri hugmynd að þeir sem skapað hefðu tæknina hefðu þurft að hafa mikinn hæfileika til djúplesturs. Tæknin væri síðan hægt og rólega að draga úr hæfileika einstaklinga til djúplesturs sem myndi gera mannkyninu erfitt fyrir í áframhaldandi þróun tækninnar og leiða á endanum til stöðnunar. Vissulega athyglisverð tilgáta en kannski full dramatísk að mínu mati.

Það er hins vegar ábyrgðarleysi að gera ekki allt sem við getum gert til að auka djúplestur barna og ungmenna. Það er staðreynd að okkur hefur farið aftur undanfarin ár á Pisa könnuninni hvað varðar lesskilning og þar koma drengir sérstaklega illa út. Við þessari þróun þarf að sporna.
Fyrir nokkru síðan kom út svokölluð Hvítbók á vegum mennta- og menningarmálaráðuneytisins. Í henni er sett fram tvö metnaðarfull markmið um umbætur í menntun á Íslandi til 2018.

  • 90% grunnskólanema nái lágmarksviðmiðum í lestri
  • 60% nemenda ljúki námi úr framhaldsskóla á tilsettum tíma

Þar sem að 2018 er á morgun þarf að hafa hraðar hendur á að finna lausnir sem raunverulega hjálpa okkur að ná þessum markmiðum. Búið er að setja á laggirnar starfshópa á vegum ráðneytisins sem eiga að koma með gagnreyndar tillögur að úrbótum.

Leikskólastigið er að sjálfsögðu tilbúið til að leggja sitt lóð á vogarkálarnar til að vinna að þessum metnaðarfullu megin markmiðum sem sett eru fram í Hvítbókinni. Ég spurði menntamálaráðherra hvernig hann sæi helst fyrir sér að hægt væri að nýta leikskólastigið betur til að vinna að markmiðum Hvítbókarinnar. Eðlilega var hann ekki með svör á reiðum höndum en nefndi þó að hægt væri að nýta betur með markvissari hætti þau lestrarskimunarpróf sem reynst hafa vel og sannað gildi sitt á leikskólastiginu. Hafði ráðherra orð á því að markvissari nýting þessara prófa á öðrum skólastigum myndi án efa gera það að verkum að hægt væri að veita nemendum sem á þurfa að halda aðstoð fyrr en nú er gert. Það væri sjálfsagt ágætis byrjun.
 

Haraldur F. Gíslason, formaður Félags leikskólakennara.