Desember- og annaruppbætur greiddar
Fréttir|4. desember 2019

Uppbætur eru miðaðar við starfshlutfall og starfstíma félagsmanns.
Desember/annaruppbætur voru greiddar félagsmönnum aðildarfélaga KÍ. 1. desember síðastliðinn. Desember/annaruppbót er greidd miðað við starfshlutfall og starfstíma félagsmanns.
Útreikningar annar/desemberuppbóta eru misjafnir eftir aðildarfélögum KÍ.
- Tímabil annaruppbóta FG, SÍ og FT er haustönnin.
- Tímabil desemberuppbótar FL og FSL er 1. janúar til 30. nóvember fyrir félagsmenn sem hófu störf fyrir 1. september.
- Tímabil desemberuppbótar FF og FS er 1. janúar til 31. október.
- Annar/desemberuppbætur skerðast vegna launalauss leyfis, ólaunaðra veikinda, námsleyfa og fæðingarorlofs umfram lögbundið fæðingaorlof.
- Full uppbót til félagsmanna FL, FSL, FG, SÍ og FT er kr. 89.000.
- Full uppbót til félagsmanna FF og FS er kr. 92.000.
Kynntu þér orlofsuppbætur nánar hér.