Deila áhyggjum af niðurskurði í skólastarfi

Fréttir|15. febrúar 2016

Stjórn Heimilis og skóla – landssamtaka foreldra tekur undir áhyggjur stjórna og samninganefnda Félags grunnskólakennara, Reykjavíkurdeildar FSL og Skólastjórafélags Íslands af niðurskurði og skertri þjónustu við nemendur í leikskólum og grunnskólum. Samtökin sendu frá sér ályktun þessa efnis 11. febrúar 2016. 

Ályktunin hljóðar svo:

Efni: Ályktun stjórnar Heimilis og skóla um niðurskurð í leik- og grunnskólum landsins

Stjórn Heimilis og skóla – landssamtaka foreldra tekur undir áhyggjur samninganefnda og stjórna Skólastjórafélags Íslands og Félags grunnskólakennara og Reykjavíkurdeildar Félags stjórnenda leikskóla af niðurskurði og skertri þjónustu við nemendur leik- og grunnskóla.

Félag stjórnenda leikskóla telur að nú sé komið inn að beini í skerðingu á fjármagni til leikskóla sem ekki sé hægt að mæta nema með beinni skerðingu á þjónustu við börn og fjölskyldur og með minni gæðum í leikskólastarfinu. Stjórnir samninganefndar Félags grunnskólakennara og Skólastjórafélags Íslands telja einnig að óbreytt staða muni leiða til verulega skertrar þjónustu við nemendur skólanna. Félögin óttast að verði ekki horfið frá þessari stefnu valdi það varanlegum skaða á skólastarfi.

Stjórn Heimilis og skóla deilir þessum áhyggjum. Vandséð er hvernig markmiðum Hvítbókar mennta- og menningarmálaráðherra verður náð þegar skólum landsins er gert

 

Ályktun á pdf.