Davíð Már Sigurðsson er félaginn

Fréttir|29. apríl 2025

„Ég vil fá leikfimi aftur, það er langtum meira lýsandi í starfi okkar. Við notum leik til að kenna fimi en ekki skóla til að kenna íþróttir,“ segir Davíð Már Sigurðsson kennari og félagi Skólavörðunnar.

Félaginn

Nafn: Davíð Már Sigurðsson
Skóli: Rimaskóli í Reykjavík
Starf: Íþróttakennari

Ég er kennari vegna þess að ... ég brenn fyrir hreyfinámi og félagsfærni í öllum sínum myndum og að sjá marga litla sigra á hverjum degi þar sem nemendur mínir yfirstíga áskoranir. Ég lít svo á að starf mitt felist fyrst og fremst í því að skapa jákvæða upplifun nemanda af hreyfingu, skapa viðhorf sem endist þeim alla ævina og hjálpa þeim að temja sér hugarfar vaxtar.

Besta stund vikunnar er að ... vakna um helgar og lesa bók með kaffibolla áður en ég skelli mér á æfingu að glíma, hoppa eða lyfta. Veit ekki um neitt sem toppar það.

Þessu myndi ég vilja breyta ... Ég myndi vilja að hreyfinám fengi sterkari sess í námskrá. Að því sögðu þá langar mig að meira verði lagt upp úr félagsfærni í tengslum við skólaíþróttir. Og ég vil fá leikfimi aftur, það er langtum meira lýsandi í starfi okkar. Við notum leik til að kenna fimi en ekki skóla til að kenna íþróttir.