Dásamleg stund í leikskólanum Mánahvoli í Garðabæ

Fréttir|22. október 2024

Það var leikskólinn Mánahvoll sem bauð heim síðdegis í dag. Þær Kristín Sigurðardóttir, leikskólastjóri og Sigríður Brynjarsdóttir, aðstoðarleikskólastjóri sögðu fjölmörgum gestum sögu leikskólans. Leikskólinn Mánahvoll er ungbarnaleikskóli. Börnin eru öll fædd árið 2023 og er Garðabær búinn að brúa bilið milli fæðingarorlofs og leikskóla. Kristín sagði að þessa dagana væri verið að bíða eftir því að börnin sem fædd eru í lok október 2023 verði 1 árs svo þau megi byrja. Stundum hafa þær lent í því að foreldrar séu hreinlega ekki tilbúnir að setja barnið í leikskóla þegar þau fá boð um leikskóladvöl. Að ári fara svo börnin í sína heimaleikskóla víðsvegar um bæinn. Það er því árlega nýr barnahópur í Mánahvoli.

Það var leikskólinn Mánahvoll sem bauð heim síðdegis í dag. Þær Kristín Sigurðardóttir, leikskólastjóri og Sigríður Brynjarsdóttir, aðstoðarleikskólastjóri sögðu fjölmörgum gestum sögu leikskólans. Leikskólinn Mánahvoll er ungbarnaleikskóli í Garðabæ. Börnin eru öll fædd árið 2023 og er Garðabær búinn að brúa bilið milli fæðingarorlofs og leikskóla. Kristín sagði að þessa dagana væri verið að bíða eftir því að börnin sem fædd eru í lok október 2023 verði 1 árs svo þau megi byrja. Stundum hafa þær lent í því að foreldrar séu hreinlega ekki tilbúnir að setja barnið í leikskóla þegar þau fá boð um leikskóladvöl. Að ári fara svo börnin í sína heimaleikskóla víðsvegar um bæinn. Það er því árlega nýr barnahópur í Mánahvoli.

Einkunarorð leikskólans eru samvinna - traust - sköpun og gleði.

Í leikskólanum er áhersla á hæglæti í starfinu. Starfsfólkið veitir með hæglæti; þá alúð og umgjörð sem hentar ungabörnum einkar vel. Því ungabörn lifa sjálfkrafa í hæglæti. Það er fullorðna fólkið og nútíma samfélag sem frekar hefur tapað tengslum við þann góða takt, þann innri áttavita. Hæglæti er ekki bara gott fyrir börnin heldur okkur starfsfólkið og foreldrana líka. Í hæglæti er okkur nefnilega fært að hlúa að upplifun, árangri og lífsgæðum allra. Hæglæti veitir jarðveg til að rækta traust, öryggi, tengsl, flæði, samvinnu og annað á þann hátt sem allir blómstra.

Í Mánahvoli bera deildirnar nöfn úr sólkerfinu, m.a. Sól, Jörð, Plútó, Mars o.s.frv. Margt í innviðunum benda í þá átt og var gaman að sjá hversu fallegar deildirnar eru og einstaklega hlýlegar. Á hverri deild dvelja einungis 12 börn svo það er hugsað fyrir því að börnin þurfi að hafa tækifæri til þess að mynda tengsl við kennarana sína. Foreldrar hafa val um að láta börnin sofa úti eða inni og eru mörg barnanna sem sofa úti í vögnunum sínum. 

Það var einstaklega ljúft að heimsækja Mánahvol síðdegis í dag og greinilegt að þar líður börnum og fullorðnum vel í dásamlegu umhverfi. 

Takk kærlega fyrir okkur!

Að vanda tókum við fullt af ljósmyndum og er hægt að skoða þær hér.