Dalskóli hlýtur Íslensku menntaverðlaunin

Dalskóli, Birte Harksen, Langholtsskóli og Ingvi Hrannar Ómarsson ásamt Utís-hópnum báru sigur úr býtum í fjórum flokkum Íslensku menntaverðlaunanna sem veitt voru með rafrænum hætti.
Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, afhenti Hildi Jóhannesdóttur, skólastjóra Dalskóla, Íslensku menntaverðlaunin á Bessastöðum í gær. Dalskóli fær verðlaunin í flokknum framúrskarandi skólastarf eða menntaumbætur.
Verðlaunaafhendingin var með óvenjulegum hætti og skrifast það á sóttvarnarreglur vegna COVID-19. Afhending verðlaunanna var kvikmynduð og vert að geta þess að öllum reglum um sóttvarnir var fylgt. Hægt er að horfa á myndbandið hér og er fróðlegt að hlýða á viðtöl við verðlaunahafa.
Dalskóli var tilefndur fyrir þróun þverfaglegra skapandi kennsluhátta, meðal annars í svokölluðum smiðjum og starfsþróunarverkefni þar sem kennarar rannsaka eigið starf.
Aðrir sem voru tilnefndir í þessum flokki voru Leikskólinn Rauðhóll, Menntaskólinn á Tröllaskaga, Pólski skólinn og Tónskóli Sigursveins.
Birte Harksen fékk kennaraverðlaunin
Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, mætti í Leikskólann Urðarhól síðdegis í gær. Þar afhenti hún Birte Harksen verðlaun í flokknum framúrskarandi kennari. Í tilefningu sagði að Birte væri tilnefnd fyrir framúrskarandi kennslu og frumkvæði við að efla skapandi og leikmiðaða starfshætti í leikskólum með vefsvæðunum Börn og tónlist, Leik að bókum og Stafagaldur.
Aðrir kennarar sem voru tilnefndir eru Anna Sofia Wahlström, Björn J. Sighvatz, Ólöf Ása Benediktsdóttir og Þórunn Elídóttir.
Smiðjan í Langholtsskóla valin framúrskarandi þróunarverkefni
Kennarar í Langholtsskóla tóku í mót samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, Sigurði Inga Jóhannssyni, en hann veitti verðlaun fyrir framúrskarandi þróunarverkefni. Það var verkefnið Smiðjan í skapandi skólastarfi sem bar sigur úr býtum. Í tilefningu segir: „Þróunarverkefni á unglingastigi í Langholtsskóla í Reykjavík sem beinist að því að auka veg þverfaglegra viðfangsefna með áherslu á sköpun, lykilhæfni og nýtingu upplýsingatækni í námi.
Önnur verkefni sem voru tilefnd eru Frístundalæsi, Listrænt ákall til náttúrunnar (LÁN): Samtal náttúrufræði og listgreina og Snillitímar í Gerðaskóla.
Ingvi Hrannar fékk hvatningarverðlaunin
Gerður Kristný skáld var formaður viðurkenningarráðs verðlaunanna og það kom í hennar hlut að afhenda Ingva Hrannari Ómarssyni, kennsluráðgjafa og menntafrömuði, Hvatningarverðlaun Íslensku menntaverðlaunanna. Verðlaunin fær Ingvi Hrannar og Utís-hópurinn fyrir framúrskarandi stuðning við starfsþróun íslenskra kennara.
Kennarasamband Íslands óskar handhöfum Íslensku menntaverðlaunanna til hamingju og sendir líka öllum þeim sem voru tilnefnd góðar kveðjur.
Tenglar:
Upplýsingar um Íslensku menntaverðlaunin á vefnum Skólaþróun.is.
Tilnefningar til Íslensku menntaverðlaunanna birtar (frétt á vef KÍ 5.10.20)