Dagur stærðfræðinnar 2020

Fréttir|7. febrúar 2020

Þema dagsins er mynstur en auðvitað má vinna að öðrum verkefnum henti það betur.

Næstkomandi föstudag 7. febrúar er dagur stærðfræðinnar. Af því tilefni hvetjum við kennara á öllum skólastigum til að skapa stærðfræðinni aukarými þann dag og vinna að verkefnum tengdum henni. Þema dagsins er mynstur en auðvitað má vinna að öðrum verkefnum henti það betur. Til að auðvelda kennurum undirbúning tókum við saman efni um mynstur. Það kemur að mestu úr þremur áttum. Úr vefverkefnabankanum Stærðfræði er skemmtileg, ýmis verkefni frá Borghildi Jósúadóttur kennnara og úr kennslubókinni Mynstur. Það á við um öll verkefnin að þó þau séu sett upp fyrir ákveðinn aldurshóp þá er mjög auðvelt að aðlaga þau og gera bæði einfaldari og flóknari eftir því sem hentar. Svo má finna fjölmörg skemmtileg verkefni á netinu: creativeinchicago.com og pinterest.com svo eitthvað sé nefnt.

Gangi ykkur vel og gaman væri að fá inn myndir frá afrakstri dagsins á facebooksíðurnar Stærðfræðikennarinn og Flötur.

Mynstur, þemahefti í stærðfræði

Hér má finna kennslubókina Mynstur sem gefin er út af Námsgagnastofnun 2003. Höfundur er Guðrún Angantýsdóttir.

Stærðfræði er skemmtileg

Í verkefnabankanum Stærðfræði er skemmtileg á vef MMS má finna fjölmörg verkefni fyrir alla aldurshópa þar sem unnið er með mynstur.

Leikskóli – yngstu bekkir grunnskóla – verkefni

  •  Mynstur í mismunandi formum
  •  Húfa með mynstri úr grunnformum
  •  Perluband
  •  Talnaraðir

Yngsta stig grunnskóla -verkefni

  •  Bókamerki
  •  Hönnum lopapeysu
  •  Mynstur í náttúrunni
  •  Perlumynstur

Miðstig grunnskóla – verkefni

  •  Skreytum skólann með stærðfræði
  •  Rangoli – mynstur í trúarbrögðum
  •  Mynstur í náttúrunni
  •  Armbönd úr öryggisnælum
  •  Mynstur og regla í loftmyndum
  •  Hitamotta úr hamaperlum

Elsta stig grunnskóla – framhaldsskóli  - verkefni

  •  Fibonacci í náttúrunni
  •  Að þekja með dómínókubbum
  •  Að búa til myndir með óreglulegum formum út frá föstum punkti.

Mynsturverkefni Borghildar Jósúadóttur

Borghildur Jósúadóttir sem var lengi kennari í Grundaskóla á Akranesi hefur mikið unnið með stærðfræði og listir

Hér má sjá glærusýningu Borghildar um Mandala mynstur

Þessar myndir voru unnar í tengslum við stærðfræði og listir í Grundaskóla hjá Borghildi.

Fimm verkefni um mynstur frá Borghildi, henta mið og elsta stigi grunnskóla.