Dagur náms- og starfsráðgjafar er í dag

Fréttir|20. október 2021

Félagið heldur upp á 40 ára afmæli sitt um þessar mundir.

Dagur náms- og starfsráðgjafar er haldinn í fimmtánda sinn í dag. Tilgangur dagsins er að vekja athygli á þessari tegund ráðgjafar og hvar hana er að finna ásamt því að kynna helstu strauma og stefnur í fag- og fræðigreininni.

Í Fréttablaðinu í dag er fylgirit þar sem fjallað er um náms- og starfsráðgjöf frá ýmsum hliðum og rætt við nokkra náms- og starfsráðgjafa. Þar segir um daginn: „Meginmarkmið náms- og starfsráðgjafar er að efla vitund einstaklinga um hæfileika sína, viðhorf og áhuga þannig að þeir geti notið sín í námi og starfi. Ráðgjöfinni er ætlað að auðvelda fólki, á hvaða aldri sem er og við hvaða aðstæður sem er, að átta sig á styrkleikum sínum, færni og áhuga til að eiga hægara með að ákveða stefnu í námi og starfi. Náms- og starfsráðgjöf er lögbundin þjónusta og mikilvægt að tryggja aðgengi að henni, hvar sem maður er staddur á sínum náms- og starfsferli.“

Rætt er við Heimi Haraldsson, náms- og starfsráðgjafa við Menntaskólann á Akureyri og stjórnarmann í Félagi náms- og starfsráðgjafa. Heimir segir: „Ef ég tala fyrir framhaldsskólann þá hefur andlegri heilsu nemenda hrakað undanfarin ár og við aðstoðum nemendur við að takast á við það. Nám er lífsstíll og því er mikilvægt að nemendur kunni að verkefnastýra náminu sínu, með góðri tímastjórnun, markmiðasetningu, forgangsröðun, góðum vinnuvenjum og heilbrigðu líferni en nemendur leita til náms- og starfsráðgjafa með þessi mál. Við styðjum nemendur til sjálfstæðis og reynum að efla seiglu með því að benda á aðferðir sem skipta máli í skóla sem og í atvinnulífi“.

Á grunnskólastigi starfar Ásthildur G. Guðlaugsdóttir, náms- og starfsráðgjafi í Kársnesskóla. „Í mínu starfi sem grunnskólaráðgjafi, veiti ég nemendum meðal annars ráðgjöf og stuðning vegna líðan þeirra, ég aðstoða og ráðlegg nemendum varðandi námstækni, veiti náms- og starfsfræðslu, og aðstoða nemendur við að efla náms- og félagslegan þroska sinn. Verkefnin hafa í raun ekki breyst mikið frá því ég hóf störf en auðvitað eru sífellt að bætast við ýmis tæki og tól sem við getum nýtt í starfinu,“ segir Ásthildur.

Nánar má lesa viðtöl við þau Heimi og Ásthildi og þó nokkra fleiri náms- og starfsráðgjafa í kynningarblaði í Fréttablaðinu í dag. Einnig er vert að minna á afmælisráðstefnu félagsins sem verður haldin 28. október á Grand hótel og hefst hún kl. 9:00.