Dagur leikskólans: Sólblítt sumar og snakk

Fréttir|21. júní 2019

Efnt var til hátíðarhalda í leikskólanum Brákarborg á Degi leikskólans. Borgarstjóri og menntamálaráðherra voru meðal gesta. Veitt voru verðlaun í ritlistarsamkeppni leikskólabarna.

Afar góð þátttaka var í ritlistarsamkeppni meðal leikskólabarna sem hleypt var af stokkunum í fyrsta sinn fyrr á þessu ári. Tilefnið var Dagur leikskólans sem er haldinn hátíðlegur 6. febrúar ár hvert. Vel á annað hundrað ljóð, textar og örsögur bárust í keppnina og voru efnistök frjáls.

Ritlistarsamkeppnin bar yfirskriftina Að yrkja á íslensku og var liður í vitundarvakningu um mikilvægi íslensks máls sem Kennarasambandið efndi til á Alþjóðadegi kennara síðasta haust.
Bjarkey Sigurðardóttir, nemandi í leikskólanum Jötunheimum á Selfossi, fékk fyrstu verðlaun fyrir ljóð sitt Sumar. Dagur B. Eggertsson borgarstjóri afhenti Bjarkeyju verðlaunin á hátíðarathöfn sem fram fór í leikskólanum Brákarborg að morgni Dags leikskólans.

Verðlaunaljóð Bjarkeyjar ber titilinn Sumar.

Önnur verðlaun komu í hlut Hersteins Snorra, leikskólanum Ásgarði í Húnaþingi, fyrir ljóðið Skipstjórinn.

Þau Maceij, Indiana Alba, Katla Sól, Helga Katrín og Arnlaug Fanney, leikskólanum Akraseli á Akranesi, fengu þriðju verðlaun fyrir ljóðið Ævintýri.

 

Sumar

Sumar er sólblítt,
gaman er þá.
Að dansa í sumarkjólnum
og borða snakk. 


Umsögn dómnefndar: Haglega samið ljóð í ætt við ferskeytlu að formi og fjallar um þá tilfinningu þegar sumarið hellist yfir mann af fullum þunga. Orðið „sólblítt“ er ljóðrænt og sérstaklega skemmtilegt og bendir til myndrænnar og skapandi hugsunar ljóðskáldsins. 

Skipstjórinn

Einu sinni var skipstjóri
og lét hann alla gera allt í skipinu
en skipstjórinn stýrði bara allan tímann.
Skipstjórinn dó
og flutti upp í skýin
og til Guðs.
Maðurinn sem drap skipstjórann var vondur
og hann fór til helvítis. 


Umsögn dómnefndar: Í ljóðinu Skipstjórinn er sögð saga af lífsbaráttu um borð í skipi, kannski fiskitogara sem aflar þjóðartekna. Illvirki er framið og morðingi fær makleg málagjöld. Mynd af himnaríki og helvíti er raunveruleg í huga ljóðmælanda og munur á réttu og röngu afdráttarlaus, ef allt væri svona skýrt í heimi hér væri gaman að lifa. Ískaldur raunveruleiki úr sjávarþorpi.

 

Ævintýri

Það er gaman að fá kakó og kex.
Það er gaman að gefa fuglunum og skauta á klaka
og finna prik og köngla,
finna tyggjó og rusl.
Finna eggjaskurn.
Finna stór prik.
Það er gaman að gefa fuglunum brauð og eiga fugla.
Fullt af fuglum.
Kannski getum við klifrað í trénu?


Umsögn dómnefndar: Mjög glaðlegt og leitandi ljóð með æsispennandi endi sem skilur lesandann eftir hugsi og skapar eftirvæntingu um að enn meira fjör sé í vændum.

 

Greinin birtist í Skólavörðunni, 2. tbl. 2019.