Dagur leikskólans er 6. febrúar 2017

Fréttir|9. janúar 2017

Dagur leikskólans verður haldinn hátíðlegur í leikskólum landsins mánudaginn 6. febrúar.

Dagur leikskólans verður haldinn hátíðlegur í leikskólum landsins mánudaginn 6. febrúar. Þetta er í tíunda skipti sem haldið er upp á daginn en sjötti febrúar er merkilegur dagur í leikskólasögu þjóðarinnar því á þessum degi árið 1950 stofnuðu frumkvöðlar leikskólakennara fyrstu samtök sín.

Leikskólakennarar, stjórnendur leikskólanna og starfsfólk er hvatt til að halda upp á daginn með einhverjum hætti. Margir leikskólar hafa opið hús og eða vekja athygli á frábæru starfi leikskólanna með öðrum hætti.

Allir sem koma að málefnum leikskólans á einn eða annan hátt, eru hvattir til að halda Degi leikskólans á lofti og fylgjast vel með starfsemi leikskólanna þennan dag. Auk þess sem leikskólar um allt land gera starf sitt sýnilegt. 

Þá eru leikskólakennarar hvattir til að segja frá viðburðum og setja myndir inn á viðburðasíðu Dags leikskólans á Facebook, myllumerkið er #dagurleikskolans2017. 

Samstarfshópur um Dag leikskólans efnir til hátíðarhalda í leikskólanum Hofi við Gullteig í Reykjavík klukkan 13.30. Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, mun afhenda hvatningarverðlaunin Orðsporið 2017. 

 

Dagskráin verður með þessum hætti: 

13.30
Börnin á Hofi syngja

13.35
Þórður Árni Hjaltested, formaður Kennarasambands Íslands, setur athöfnina.

13.40
Klara E. Finnbogadóttir, sérfræðingur hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga og Björk Óttarsdóttir, sérfræðingur hjá mennta- og menningarmálaráðuneytinu. 

13.50
Kristín Dýrfjörð, dósent við Kennaradeild HA og Arna H. Jónsdóttir, lektor við Menntavísindasvið HÍ. 

14.00
Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, ávarpar samkomuna og afhendir Orðsporið 2017. 

14.20
Magnús Magnús Magnússon stýrir víkingaklappi.

Samvera og veitingar
 

Dagur leikskólans er haldinn í samstarfi Félags leikskólakennara, Félags stjórnenda leikskóla, mennta- og menningarmálaráðuneytis, Sambands íslenskra sveitarfélaga og Heimilis og skóla. Tilgangurinn er að auka jákvæða umræðu um leikskólann, vekja athygli á hlutverki leikskóla og starfi leikskólakennara.

 

Orðsporshafar fyrri ára

Síðastliðin fjögur ár hefur viðurkenningin Orðsporið verið veitt þeim sem hefur þótt skara fram úr í að efla orðspor leikskólans og eða hefur unnið ötullega í þágu leikskóla. Þeir sem hafa hlotið Orðsporið eru:

2016
Ásmundur Örnólfsson aðstoðarleikskólastjóri
Fyrir að verða alla tíð framúrskarandi fyrirmynd fyrir karla í leikskólakennarastarfi og leggja sitt af mörkum til að efla orðspor leikskólakennarastarfsins.

2015
Kópavogsbær og sveitarfélagið Ölfus
Fyrir að sýna sveigjanleika þannig að starfsfólk leikskóla geti sinnt námi með vinnu; aðstoða við námskostnað og veita launuð námsleyfi.

2014
Okkar mál – þróunarverkefni
Sem fól í sér aukið samstarf skóla og stofnana í Fellahverfi.

2013
Súðavíkurhreppur / Kristín Dýrfjörð og Margrét Pála Ólafsdóttir
Súðavíkurhreppur fyrir að bjóða gjaldfrjálsan leikskóla. Kristín og Margrét Pála fyrir að vekja umræðu um málefni leikskólans.