Dagur leikskólans 6. febrúar 2018

Fréttir|22. janúar 2018

Þetta er í ellefta skipti sem haldið er upp á daginn en sjötti febrúar er merkilegur dagur í leikskólasögu þjóðarinnar því á þessum degi árið 1950 stofnuðu frumkvöðlar leikskólakennara fyrstu samtök sín.

Dagur leikskólans verður haldinn hátíðlegur í leikskólum landsins þriðjudaginn 6. febrúar. Þetta er í ellefta skipti sem haldið er upp á daginn en sjötti febrúar er merkilegur dagur í leikskólasögu þjóðarinnar því á þessum degi árið 1950 stofnuðu frumkvöðlar leikskólakennara fyrstu samtök sín.

Leikskólakennarar, stjórnendur leikskólanna og starfsfólk er hvatt til að halda upp á daginn með einhverjum hætti. Margir leikskólar hafa opið hús og eða vekja athygli á frábæru starfi leikskólanna með öðrum hætti.

Allir sem koma að málefnum leikskólans á einn eða annan hátt, eru hvattir til að halda Degi leikskólans á lofti og fylgjast vel með starfsemi leikskólanna þennan dag. Auk þess sem leikskólar um allt land gera starf sitt sýnilegt.

Þá eru leikskólakennarar hvattir til að segja frá viðburðum og setja myndir inn á samfélagsmiðla undir myllumerkinu #dagurleikskolans2018.  

Orðsporið 2018 verður veitt við hátíðlega athöfn á Degi leikskólans, 6. febrúar 2018. 

Orðsporshafar fyrri ára
Síðastliðin fimm ár hefur viðurkenningin Orðsporið verið veitt þeim sem hefur þótt skara fram úr í að efla orðspor leikskólans og eða hefur unnið ötullega í þágu leikskóla. Þeir sem hafa hlotið Orðsporið eru:

2017
Framtíðarstarfið – átaksverkefni um eflingu leikskólastigsins
Fyrir að vera vel heppnað verkefni, til þess fallið að efla orðspor leikskólakennarastarfsins og breyta afstöðu ungs fólks til þess. 

2016
Ásmundur Örnólfsson aðstoðarleikskólastjóri
Fyrir að verða alla tíð framúrskarandi fyrirmynd fyrir karla í leikskólakennarastarfi og leggja sitt af mörkum til að efla orðspor leikskólakennarastarfsins.

2015
Kópavogsbær og sveitarfélagið Ölfus
Fyrir að sýna sveigjanleika þannig að starfsfólk leikskóla geti sinnt námi með vinnu; aðstoða við námskostnað og veita launuð námsleyfi.

2014
Okkar mál – þróunarverkefni
Sem fól í sér aukið samstarf skóla og stofnana í Fellahverfi.

2013
Súðavíkurhreppur / Kristín Dýrfjörð og Margrét Pála Ólafsdóttir
Súðavíkurhreppur fyrir að bjóða gjaldfrjálsan leikskóla. Kristín og Margrét Pála fyrir að vekja umræðu um málefni leikskólans.

 

Dagur leikskólans 2017 – albúm á Facebook.