Dagskrá verkfallsmiðstöðvar

Fréttir|23. október 2014

Boðið verður upp á upplestur, tónlistaratriði og upplýsinagr um stöðu kjaraviðræðna Félags tónlistarskólakennara og Sambands íslenskra sveitarfélaga í verkfallsmiðstöð FT í Valsheimilinu í dag. Dagskráin er sem hér segir:

11:00 Verkfallsmiðstöðin opnar

12:00 Steinar Bragi kemur og les úr nýjustu bók sinni, KATA (sjá nánari upplýsingar um bókina hér)

12:30 Guðmundur Samúelsson spilar nokkur lög á nikkuna

13:00 Sigrún Grendal, formaður FT og fulltrúar úr samninganefnd félagsins fara yfir stöðuna í kjaraviðræðunum og ræða málin við félagsmenn.

Við hvetjum ykkur öll til að mæta tímanlega og sýna samstöðu og njóta þess saman sem góðir gestir ætla að deila með okkur í verkfallinu.

Í verkfallsmiðstöðinni verður heitt á könnunni þrjá daga í viku, mánudaga, miðvikudaga og fimmtudaga klukkan 11-14.