Dagsetningar svæðisþinga tónlistarskólanna liggja fyrir

Dagskrá svæðisþinganna verður send út þegar nær dregur en meðal dagskrárefna sem eru til skoðunar er samleikur og raddsetning, starfsþróun tónlistarskólakennara, kulnun í starfi, starfsánægja og samskipti, og kjaramál. Þingin standa öllum opin.
Staðsetningar og dagsetningar svæðisþinga tónlistarskóla 2018 liggja nú fyrir en svæðisþingin eru nú haldin í sextánda sinn. Svæðisþing tónlistarskóla eru samstarfsverkefni Félags kennara og stjórnenda í tónlistarskólum (FT) og Samtaka tónlistarskólastjóra (STS).
Dagskrá svæðisþinganna verður send út þegar nær dregur en meðal dagskrárefna sem eru til skoðunar er samleikur og raddsetning, starfsþróun tónlistarskólakennara, kulnun í starfi, starfsánægja og samskipti, og kjaramál. Þingin standa öllum opin.
Svæðisþingin verða haldin samkvæmt eftirfarandi:
- Svæðisþing tónlistarskóla á Vestfjörðum
Hótel Ísafjörður / föstudaginn 7. september
- Svæðisþing tónlistarskóla á Vesturlandi
Fosshótel Stykkishólmur / miðvikudaginn 12. september
- Svæðisþing tónlistarskóla á Austurlandi
Safnaðarheimili Norðfjarðarkirkju, Egilsbraut 15, Neskaupstað / föstudaginn 14. september
- Svæðisþing tónlistarskóla á Norðurlandi
Sigló Hótel, Snorragötu 3, Siglufirði / föstudaginn 21. september
- Svæðisþing tónlistarskóla á höfuðborgarsvæðinu
Grand Hótel Reykjavík, Hvammi / föstudaginn 28. september
- Svæðisþing tónlistarskóla á Suðurlandi og Suðurnesjum
Íþróttaakademíunni í Reykjanesbæ, fimmtudaginn 4. október