Dagný Ingadóttir er nýr framkvæmdastjóri KÍ

Dagný Ingadóttir tekur formlega við stöðu framkvæmdastjóra Kennarasambandsins þann 1. október næstkomandi. Hún hefur víðtæka reynslu á sviði stjórnunar, reksturs, stefnumótunar og mannauðsmála.
Dagný kemur til Kennarasambandsins frá Reykjavíkurborg þar sem hún hefur starfað frá árinu 2010. Þar hefur hún gegnt starfi deildarstjóra þjónustu og stjórnsýslu á skrifstofu borgarstjóra og borgarritara frá árinu 2014. Dagný hefur sem stjórnandi hjá Reykjavíkurborg mikla reynslu hvað varðar daglegan rekstur, stýringu mannauðs og fjármálastjórn.
Í störfum sínum hefur Dagný jafnframt leitt faglegt starf sem viðkemur þjónustu og stjórnsýslu, borið ábyrgð á þjónustu við borgarstjóra í víðu samhengi og auk þess sinnt stefnumótun, áætlanagerð, þróun verkferla og gæðamálum.
Dagný er stjórnmálafræðingur að mennt, með meistaragráðu í blaða- og fréttamennsku og hefur auk þess starfað sem blaðamaður og ritstjóri.
Staða framkvæmdastjóra KÍ er ný og segir Magnús Þór Jónsson, formaður KÍ, að ákvörðun um að gera þessa breytingu á skipulagi sambandsins hafi verið tekin á vettvangi stjórnar á vordögum.
„Segja má að ákveðinn grunn að stöðu framkvæmdastjóra megi finna í starfi skrifstofustjóra sem mun verða lagt niður í áföngum núna í vetur en ekki síður er starfinu ætlað að styrkja innra starf skrifstofu Kennarasambandsins og efla ramma um starfsemi aðildarfélaganna okkar, sjóðanna, nefndanna og ráðanna,“ segir Magnús Þór.
Ráðgjafafyrirtækið Attentus hélt utan um auglýsingar og ráðningarferilinn sem hófst í júlí og lauk með undirritun samnings við Dagnýju, mánudaginn 25. ágúst. „Það var afskaplega mikilvægt að fá Attentus til liðs við okkur í ráðningarferlinu enda hafa þau verið að rýna í starfsemi KÍ undanfarið ár og lagt mjög góðar tillögur inn í stefnumótun okkar til framtíðar.“
Alls bárust 28 umsóknir um starf framkvæmdastjóra og var það samhljóma mat stjórnar KÍ og Attentus að Dagný Ingadóttir væri hæfasti einstaklingurinn til starfans. Það var okkur mikið ánægjuefni að hún samþykkti að taka starfið að sér. Við hlökkum til samstarfsins við Dagnýju og berum miklar væntingar til hennar starfa, Kennarasambandinu og félagsfólki til heilla,“ segir Magnús Þór.
Dagný mun í fyrstu starfa við hlið Hannesar Þorsteinssonar skrifstofustjóra en hann mun láta af störfum að loknu 9. þingi KÍ sem fer fram í apríl á næsta ári.
Kennarasamband Íslands býður Dagnýju velkomna í starfsmannahópinn.