Dagný Arnalds er félaginn

„Besta stund vikunnar er líklega þegar nemendur koma til mín að eigin frumkvæði og sýna mér til dæmis lag eða texta sem þau hafa samið sjálf,“ segir Dagný Arnalds kennari og félagi Skólavörðunnar.
Félaginn
Nafn: Dagný Arnalds
Skóli: Landakotsskóli í Reykjavík
Starf: Tónlistarkennari
Ég er kennari vegna þess að ... mér finnst kennarastarfið ná að sameina svo margt af því sem skiptir mig mestu máli. Á meðal þess er tónlist og að börn fái tækifæri til að tjá sig í gegnum listir. Ég er líka svo heppin að hafa kynnst mörgum frábærum kennurum í gegnum tíðina sem höfðu mikil áhrif á mig og náðu að vekja hjá mér áhuga sem ég verð alltaf þakklát fyrir.
Besta stund vikunnar er að ... er líklega þegar nemendur koma til mín að eigin frumkvæði og sýna mér til dæmis lag eða texta sem þau hafa samið sjálf. Það er líka alltaf svolítið gaman að heyra nemendur raula eitthvað á ganginum sem við erum búin að vera að fást við.
Þessu myndi ég vilja breyta ... Ég myndi vilja að möguleikar tónlistar til að hafa jákvæð áhrif á líðan barna, sjálfstraust þeirra og félagsleg tengsl væru miklu meira nýttir. Til þess að öllum börnum gefist kostur á tónlistarnámi sem hentar þeim þurfum við að skoða fjölbreyttari leiðir, búa til farveg og tíma fyrir samstarf og finna tónlist miklu skýrari stað í skólakerfinu. Ég held líka að við horfum oft fram hjá mikilvægum atriðum sem frekar einfalt væri að breyta, til dæmis hljóðvist í skólum, sem getur haft mikil áhrif á hvernig nemendum gengur að einbeita sér og læra.