COVID-19 sögum skólafólks safnað í bók

Fréttir|16. febrúar 2021

Menntamálaráðuneytið vinnur að gerð bókar um reynslu skólafólks á tímu kórónaveirunnar. Sögurnar verða til umfjöllunar á ráðstefnu sem ráðgert er að halda í vor.

Nú stendur yfir söfnun upplýsinga um reynslu fólks af skólahaldi á tíma COVID-19. Þá er átt við alla þætti sem snerta nám og kennslu á þessum tíma en einnig aðra þætti sem hafa haft áhrif á nemendur, foreldra, kennara, stjórnendur auk annarra starfsmanna skóla á öllum skólastigum. Sögurnar verða til umfjöllunar á ráðstefnu vorið 2021 og efniviðurinn nýttur í bók sem ráðgert er að gefa út um þennan tíma í íslenskri menntasögu.

Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, segir að markmiðið sé að safna sögum sem hægt sé að draga lærdóm af. „Við höfum áhuga á öllu því sem við kemur námi og kennslu á þessum tíma, en einnig öðrum þáttum sem höfðu áhrif á nemendur, foreldra, kennara, skólastjórnendur auk annarra starfsmanna skóla á öllum skólastigum. Við viljum fá sem breiðasta dreifingu sagna með alls konar upplifunum, áskorunum, lausnum og reynslu," segir Lilja í frétt á vef stjórnarráðsins. 

„Sögurnar verða ekki birtar í heild sinni án samráðs við höfunda þeirra. Æskilegt er að fram komi staða þess sem miðlar sögunni (nemandi, foreldri, kennari, skólastjórnandi, annað), skólastig og landsfjórðungur/svæði. Æskileg lengd sagna er allt að 300-600 orð í rituðum texta eða allt að 3 mínútur ef um myndband eða hljóðrás er að ræða. Efnistök eru opin en málefnið þarf að tengjast menntun og COVID-19.“ segir í frétt á vef stjórnarráðsins. 

Sögunum má skila á íslensku eða ensku á netfangið sogur@mrn.is. Ritstjóri er Svanhildur Kr. Sverrisdóttir.