Byrjendanám í tónlist - framhald

Fréttir|15. júní 2015

Kennarasambandið vekur athygli á að í ágúst verður efnt til námskeiðs fyrir alla sem hafa áhuga á upphafsskrefum tónlistarnáms og vilja leggja sitt af mörkum við að styrkja þetta mikilvæga tímabil í lífi hvers tónlistarnema:

Sigrún Sævarsdóttir-Griffiths efnir til frekari hugmyndasöfnunar og tilraunastofu dagana 15.-16. ágúst 2015.

Hvernig er mögulegt að nálgast fyrstu skrefin í tónlistarnámi á skapandi, spennandi og gefandi hátt sem veitir rétta undirstöðu, kveikir áhuga en byggir hugsanlega á breyttum áherslum?

Í ágúst 2014 var haldin mál- og tilraunastofa þar sem viðstaddir veltu þessum hugmyndum fyrir sér, bæði með spjalli og praktískum spekúlasjónum. Margar áhugaverðar spurningar komu upp s.s:

´Hvað viljum við að nemendur taki með sér út í lífið eftir að þeir hætta tónlistarnámi, að meðaltali eftir 4 ár?´

´Hvernig er unnt að nálgast tónfræði á praktískari hátt og gera tímana tengdari raunverulegri tónlistariðkunn?´

Sigrún Sævarsdóttir-Griffiths kennari og deildarstjóri við Guildhall School of Music and Drama efnir nú til frekari hugmyndasafnana og tilraunastofu praktískra leiða til þess að leggja frekari áherslu á hinn skapandi þátt í almennu tónlistarnámi.

Í þetta skiptið verður ungum tónlistarnemum boðið að taka þátt í tilraunastofunni og leggja orð í belg.

Námskeiðið er við hæfi allra sem hafa áhuga á upphafsskrefum tónlistarnáms og vilja leggja sitt af mörkum við að styrkja þetta mikilvæga tímabil í lífi hvers tónlistarnema. Mjög gaman væri að hitta á ný, þátttakendur frá tilraunastofunni 2014 og deila því hvernig þeim hefur gengið að nýta nýjar hugmyndir, en einnig eru nýir þátttakendur boðnir hjartanlega velkomnir!

Staður og stund:

{tabulizer:include style[gr.alterora.elemental_2_blue.css] responsive[1] id[tab_234ET6wm69]}

Laugardagur 15. ágúst:

10.00-13.00, 14.00-17.00

Tilraunastofa kennara

Sunnudagur 16. ágúst:

10.00-13.00

Ungir tónlistarnemar taka þátt

 

14.00-16.00

Samantekt

 

16.00-17.00

Næstu skref

 

  • Námskeiðið fer fram á sal Nýja tónlistarskólans við Grensásveg.
  • Tilraunastofan kostar 35.000 kr. og fæst námskeiðsgjaldið endurgreitt frá endurmenntunarsjóðum.
  • Áhugasömum er bent á að skrá sig hjá Sigrúnu Sævarsdóttur-Griffiths í gegnum sigrunsae@yahoo.co.uk