Byggjum upp samheldinn hóp með skýra sýn

Guðjón Hreinn Hauksson, formaður FF, skrifar pistil í tilefni framboðs til formanns félagsins.
Kæru félagar,
störf mín fyrir Félag framhaldsskólakennara hófust árið 2013 með trúnaðarmennsku í Menntaskólanum á Akureyri þar sem ég kenndi í rúm 20 ár. Árið 2014 tók ég að mér að formennsku í kennarafélagi skólans og sat sem slíkur minn fyrsta aðalfund FF og 6. þing KÍ. Í framhaldinu var skorað á mig að bjóða mig fram til stjórnar FF í mars 2015 þegar varamann vantaði inn í stjórnina. Þetta gerði ég og hef síðan þá orðið sífellt virkari í starfi félagsins.
Árið 2018 ákvað ég aftur að bjóða mig fram til stjórnar félagsins og ég verð að viðurkenna að mér þykir dálítið gaman að rifja upp áherslumál mín á þessari fjögurra ára gömlu framboðssíðu. Þar koma t.d. fram áhyggjur mínar af því að önnur öfl en kennarar ráði öllu um það hvernig framhaldsskólinn og menntakerfið almennt þróist og þá sérstaklega ef við erum ósamstíga og upptekin af innri ágreiningi og deilum.
Nú, eftir kórónufaraldurinn, sem mætti kalla stærsta endurmenntunarnámskeið kennara frá upphafi, verðum við sem stétt að taka stöðuna af alvöru, standa vörð um gildi okkar sem sérfræðinga en sækja um leið fram í af faglegu stolti og trausti hvert til annars. Við getum ekki setið hjá og látið aðra um að móta framhaldsskólastigið eftir sjónarmiðum sem hafa ekkert með menntun að gera eða vinna jafnvel gegn henni.
Strax í upphafi kennsluferilsins var mér umhugað um að hvert skólasamfélag yrði að blómstra á eigin faglegu forsendum og að skapa þyrfti skilyrði fyrir uppbyggingu lærdómssamfélaga á hverjum stað. Um leið yrðu sérfræðingar á hverju sviði að eiga greiðan aðgang hver að öðrum þvert á skóla og fagsvið.
Þegar ég bauð mig fram til formanns árið 2019, eftir að Guðríður Arnardóttir hætti formennsku eftir fyrsta ár kjörtímabilsins, má sjá þessari hugsun um öflugt tengslanet skólafólks snúið upp á félagsstarfið í FF á kynningarsíðu frambjóðenda:
Ég sé helst fyrir mér að formaður FF sé í þjónustuhlutverki við félagsmenn og hans meginhlutverk sé að stuðla að því að helstu einingar félagsins virki sem skyldi, samskipti milli félagsmanna gangi greiðlega og að lýðræðislega sé staðið að öllum stórum ákvörðunum. Félagið býr yfir ótrúlega fjölbreyttum mannauði sem þarf að virkja, viðhalda og næra. Það er vel skipulagt með kennarafélögum í hverjum skóla, öflugu trúnaðarmannakerfi og faggreinafélögunum. Þessar einingar þarf að tengja vel saman og tryggja gott upplýsingaflæði í allar áttir og þannig getum við saman myndað samheldna stétt með skýra sýn. Þarna liggur rauði þráðurinn í starfi formanns.
Það hefur ekki verið einfalt að vinna eftir þessum „rauða þræði“ á þessu tímabili frá 2019 til 2022 sem einkenndist annars vegar af samfelldri samningavinnu og hins vegar Covid-19 með öllum sínum takmörkunum. Ég tel þó að okkur hafi tekist að þétta raðirnar, bæði í samningavinnunni og svo sérstaklega að afloknum samningum. Þá var sett upp traust stuðningsnet utan um vinnu samstarfsnefnda sem hafa unnið að því að semja um útfærslu aukins fjármagns til framhaldsskólanna í stofnanasamningum. Við starfsfólkið höfum einnig náð að komast í allnokkra skóla frá því í október og höfum átt einstaklega góða fundi með félagsdeildunum. Þess ber einnig að geta að við höfum átt góð samtöl við skólameistara og teljum okkur hafa skýrt ýmis mál, fyrirbyggt misskilning og skapað traust. Það hefur verið einstaklega gefandi að komast loksins í að sinna erindrekstri af einhverju viti og það verður sannarlega áframhald á því á næstunni.
Framundan eru stór og margþætt verkefni sem felast bæði í því að fylgja eftir verkefnum gildandi kjarasamnings og að undirbúa næstu viðræður; tryggja að raddir kennara og náms- og starfsráðgjafa hafi vægi á réttum stöðum; virkja samtakamátt og slagkraft kennarasambandsins alls; hampa kennarastarfinu eins og það verðskuldar og byggja upp stolta fagstétt í skólum landsins. Þessi vegferð er nú þegar hafin eins og sjá má af tölu frambjóðenda til kosninga nú, alls bjóða sig fram fulltrúar kennara úr 15 framhaldsskólum! Við erum að tala um fulltrúa frá helmingi þeirra 30 framhaldsskóla sem við semjum fyrir. Það er frábær árangur og sýnir að samskiptin og tengslanetið eru í góðri mótun.
Fái ég endurnýjað umboð félagsfólks nú í byrjun maí tel ég það mitt meginverkefni að halda þessum stuðningi við tengslanetið og innra starfið áfram. Samheldinn hópur með skýra sýn er alger forsenda þess að við höfum alvöru slagkraft í skólapólitík og kjara- og réttindamálum.
Ég hvet allt félagsfólk til þess að mæta á eða fylgjast með framboðsfundinum sem fram fer nú í kvöld í fundarsal KÍ í Borgartúni 30. Þar verða ýmis mál örugglega rædd á dýptina og hægt að gera sér betri mynd af frambjóðendum og áherslum þeirra.