Bústaðir og berjablámi gleðja marga að hausti

Fréttir|16. ágúst 2023
Kjarnabyggð í Kjarnaskógi

Orlofssjóður KÍ minnir félagsmenn á að enn eru laus orlofshús til leigu á hausti komanda. Bókanir fyrir vetrartímabil 2023-2024 hefjast í kringum 20. september.

Haustið er byrjað að minna á sig með rökkvuðum ágústkvöldum. Félagsmenn KÍ hafa verið duglegir að bóka orlofshús á þessum árstíma en enn má þó finna lausa daga hér og þar. Félagsmenn eru hvattir til kynna sér framboðið.

Haustið er einstakur tími til að njóta náttúrunnar og samveru utan þéttbýlisins. Litir gróðursins taka á sig nýja mynd, norðurljósin sjást aftur og farafuglarnir láta sig hverfa hver af öðrum. Það er manninum eðlislægt að fara í forðasöfnun á þessum árstíma og er dagur í berjamó er ein rótgrónasta hausthegðun íslendinga.

Fyrir þá sem ekki eiga sína uppáhalds laut sem heimsótt hefur verið árlega gegnum tíðina, geta svæðin nálægt orlofseignum okkar verið góður kostur. Til dæmis er landið í kringum Bifröst ríkulegt af berjum og hægt að tryggja sér góðan vetrarforða á stuttum tíma. Við hvetjum fólk til að tíýna góða blöndu af bláberjum, krækiberjum og hrútaberjum til að smella útí morgunhræringinn. Það má líka líta eftir sveppum þegar þvælst er um skógivaxin svæði á þessum tíma. Oft er hægt að finna góða matsveppi til að þurrka og eiga i kryddskúffunni.

Verðið á haustleigum hækkaði ekkert á milli ára og nú þarf ekki punkta til að leigja neina af eignum sjóðsins á virkum dögum utan sumartímabilsins. Helgarleigur krefjast þó enn punkta og hefur fjöldi punkta sem þarf til að leigja helgi verið hækkaður um 2 til að halda kerfinu í jafnvægi.

Fyrir þá félagsmenn sem hugsa lengra fram í tímann er vert að nefna að bókanir fyrir veturinn 2023-2024 verða opnaðar í kringum 20. september næstkomandi.

Skoða Orlofsvefinn

Lesa Ferðablaðið