Brýnt að auka virðingu fyrir kennarastarfinu

Fréttir|24. apríl 2015

Hagur skóla og aðstæður til að halda uppi starfi sem samrýmist þörfum barna og ungmenna er eitt mikilvægasta viðfangsefni samfélagsins. Brýnt er að lyfta kennarastarfinu til vegs og virðingar í samfélaginu. Til þess þurfa kennarar að byrja á sjálfum sér og ræða hvernig þeir sjálfir tala um kennarastarfið. Þetta segir í ályktun um Skólamál sem afgreidd var á nýafstöðnum ársfundi Kennarasambands Íslands, en yfirskrift hans var „Ímynd og orðræða kennara“. Í ályktuninni segir ennfremur:

Kennarar þurfa að gaumgæfa þýðingu siðareglna fyrir kennarastarfið og fagmennsku og fagvitund kennarastéttarinnar í hvívetna. Það er mikilvægt sem aldrei fyrr að byggja upp breiða forystu innan KÍ og mynda sterka liðsheild.

Ályktunin í heild er svohljóðandi:

Markmiðið með stofnun KÍ fyrir rúmum áratug var að ná meiri árangri í skóla- og menntamálum og baráttumálum kennarastéttarinnar.

Félagar í KÍ starfa á öllum skólastigum fyrir utan háskóla. Í þessari fjölbreytni býr mikill styrkur og sú sannfæring að menntun skapi grunn réttlætis í samfélaginu.

Stjórnvöldum ber að taka alvarlega ábyrgð kennarasamtakanna á því að fjalla um skólamál og þróun skólastarfs á hverjum tíma. Hagur skóla og aðstæður til að halda uppi starfi sem samrýmist þörfum barna og ungmenna er eitt mikilvægasta viðfangsefni samfélagsins.

Brýnt er að lyfta kennarastarfinu til vegs og virðingar í samfélaginu. Til þess þurfa kennarar að byrja á sjálfum sér og ræða hvernig þeir sjálfir tala um kennarastarfið. Kennarar þurfa að gaumgæfa þýðingu siðareglna fyrir kennarastarfið og fagmennsku og fagvitund kennarastéttarinnar í hvívetna. Það er mikilvægt sem aldrei fyrr að byggja upp breiða forystu innan KÍ og mynda sterka liðsheild.

Kennarar, náms- og starfsráðgjafar og skólastjórnendur þurfa að hafa frumkvæði að því að breiða út jákvæða og faglega samfélagsumræðu um skóla og kennarastarfið, skóla- og menntamál og starf kennarasamtakanna.

Ársfundurinn undirstrikar að þetta er sameiginlegt verkefni allra félaga í KÍ. Hver og einn og allir saman bera ábyrgð á að styrkja ímynd, orðræðu og samstöðu.

Ársfundurinn felur forystu KÍ að hefja þetta starf sem fyrst og leggur á það áherslu að fyrir næsta ársfund KÍ liggi niðurstöður þess fyrir, m.a. greining, aðgerðaáætlun, verkfæri og framgangur vinnunnar.

Það er allra hagur að kennarasamtökin beiti sér sérstaklega í samfélagsumræðu í samræmi við þá samstöðuhugsun sem þau eru stofnuð um.