Breyttur afgreiðslutími og sumarlokun Kennarahúss
Fréttir|29. júní 2016
Skrifstofu Kennarasambandsins verður lokað klukkan 15 þrjá föstudaga í sumar; 1. júlí, 8. júlí og 5. ágúst. Símatími þjónustufulltrúa sjúkra-, orlofs- og endurmenntunarsjóða er frá klukkan 13 til 16 til og með 8. júlí næstkomandi.
Formlega sumarlokun Kennarahúss hefst mánudaginn 11. júlí og stendur venju samkvæmt í þrjár vikur. Skrifstofan verður opnuð á nýjan leik þriðjudaginn 2. ágúst.
Hægt verður að hafa samband við Orlofssjóð á meðan á sumarlokun stendur. Símatími verður alla virka daga frá klukkan 9 til 12 – í síma 595 1170.