Breyttar reglur um sóttkví í skólum

Sóttvarnalæknir hefur endurskoðað og birt nýjar leiðbeiningar um sóttkví á öllum skólastigum og í frístundastarfi. Ný viðmið eru um sóttkví og smitgát auk þess sem hraðpróf verða notuð.
Ef nemandi greinist með Covid-19 þá gildir sóttkví um vini og þá sem voru með nemandanum eftir skóla. Sóttkví gildir jafnframt um þá nemendur sem sátu við sama borð og hinn smitaði eða þá sem voru með honum í vinnuhópi.
Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýjum leiðbeiningum sóttvarnalæknis sem voru birtar rétt í þessu á vef Stjórnarráðsins.
Með breytingunum má gera ráð fyrir að færri þurfi að sæta sóttkví ef smit kemur upp. Viðmið um sóttkví eru nú skilgreind eftir því hvort samvera við smitaðan einstakling hefur verið mikil eða lítil. Hafi samskipti ekki verið mikil má búast við kröfu um smitgát í stað sóttkvíar en einstaklingur í smitgát getur mætt í skólann.
Þá kemur fram á vef Stjórnarráðsins að hraðpróð verði notuð þegar í hlut eiga einstaklingar sem sæta smitgát. Hraðpróf verða tekin daginn eftir smit og aftur eftir fjóra daga.
Skólastjórnendur eru eftir sem áður hvattir til að huga vel að sóttvörnum, hólfaskipta skólastarfi sem mest og takmarka umgengni milli hólfa eins og kostur er.
Grunnmarkmið skýrð með litum
Í leiðbeiningum sóttvarnalæknis eru leiðbeiningarnar settar fram með myndrænum hætti og eru kennarar, skólastjórnendur og starfsfólk skólanna hvatt til að kynna sér þær í þaula.