Breyttar reglur sjúkrasjóðs um styrki vegna tæknifrjóvgana

Fréttir|1. september 2024

Regla sjúkrasjóðs KÍ um styrki vegna tæknifrjóvgana tók breytingum á sunnudaginn 1. september.

Á sunnudaginn, 1. september, var reglum Sjúkrasjóðs vegna styrkja í tengslum við tæknifrjóvganir breytt. Reglan er nú svohljóðandi:

8. gr. Tæknifrjóvgun - ættleiðing

1. Sjóðurinn endurgreiðir hluta kostnaðar vegna tæknifrjóvgunar sem fellur utankostnaðarþátttöku Sjúkratrygginga Íslands. Greiddar eru að hámarki 480.000kr. á hverju 12 mánaða tímabili. Undir þessa grein fellur eftirfarandi kostnaður:

  • Glasameðferð frá og með 5. meðferð (tekur til IVF, ICSI, PICSI og IMSI)
  • Uppsetning á frystum fósturvísi (þó ekki ef um aðgerð af læknisfræðilegum ástæðum er að ræða)
  • Tæknisæðing
  • Kaup á gjafakynfrumum
  • Gjafaeggjameðferð

2. Sjóðurinn endurgreiðir hluta kostnaðar vegna ættleiðinga, þó að hámarki 300.000 kr. fyrir hvert barn.