Breyttar reglur Sjúkrasjóðs um næstu mánaðamót

Fréttir|16. október 2025

Breytingar verða gerðar á tímabili sjúkradagpeninga en um leið verður fjárhæð á dag hækkuð. Þá verður reglum um tæknifrjóvganir breytt á þá lund að styrkir verða óháðir kyni sjóðfélaga. Nýtt regluverk tekur gildi 1. nóvember næstkomandi.

Stjórn sjúkrasjóðs KÍ hefur gert nokkrar breytingar á útlutunarreglum sjóðsins.  

Helstu breytingarnar eru að tímabil sjúkradagpeninga verður stytt úr sex mánuðum í fimm en um leið verður fjárhæð dagpeninga hækkuð í 21 þúsund á dag. Þetta á við um þær umsóknir sem berast frá og með 1. nóvember 2025. Gerð verður krafa um að læknisvottorð verði sjúkradagpeningavottorð.

Þá verður sú breyting gerð að styrkir til tæknifrjóvgunar verða óháðir kyni sjóðfélaga.

Stjórn sjúkrasjóðs leggur jafnframt fram undanþáguatkvæði vegna umsókna um tæknifrjóvgun. Félagar sem féllu ekki undir regluna sem er í gildi til 1. nóvember 2025 hafa nú kost á sækja um styrkinn. Þetta á einkum við um maka þess sem undirgekkst meðferðina. Sjóðurinn endurgreiðir hluta kostnaðar enda hafi reikningar verið gefnir út 1. september 2023 eða síðar.

Styrkfjárhæð lækkar frá því sem áður var og verður að hámarki 300 þúsund krónur á sjóðfélaga. Í nýja regluverkinu er gert ráð fyrir að undanþága vegna eldri reikninga falli úr gildi 31. janúar 2026.

Þá hefur orðalagi reglunnar um meðferðarstyrk verið breytt og hún gerð skýrari. Nafn og kennitala meðferðaraðila þarf að koma fram á reikningi ásamt dagsetningum meðferða og tegund meðferðar.

Aðrar breytingar er að finna í úthlutunarreglum sjóðsins.

Nýjar reglur sjúkrasjóðs taka gildi 1. nóvember næstkomandi.

Vefsíða Sjúkrasjóðs