Breyttar aðstæður kölluðu á önnur úrræði

Kennarar og foreldrar stóðu frammi fyrir nýjum áskorunum í vor þar sem nám grunnskólabarna þurfti að hluta til að fara fram á heimilum.
Kennarar og foreldrar stóðu frammi fyrir nýjum áskorunum í vor þar sem nám grunnskólabarna þurfti að hluta til að fara fram á heimilum. Til að koma til móts við þarfir kennara, nemenda og foreldra brá starfsfólk Menntamálastofnunar á það ráð að gera rafrænt námsefni aðgengilegra fyrir heimilin. Harpa Pálmadóttir, útgáfustjóri miðlunarsviðs Menntamálastofnunar, og Andrea Anna Guðjónsdóttir, sérfræðingur í læsisteymi stofnunarinnar, sáu um uppsetningu og utanumhald á Fræðslugátt sem stofnunin setti á laggirnar.
Tilgangur Fræðslugáttarinnar
Aðspurðar um það hvernig Fræðslugáttin kom til segja þær að þegar leit út fyrir að til samkomubanns kæmi og að kennsla yrði skert hafi þau hjá Menntamálastofnun farið að velta því upp hvernig hægt væri að koma til móts við kennara, nemendur og foreldra.
„Vefur Menntamálastofnunar er vissulega öllum opinn og kennarar þekkja hann en öðru máli gegnir um marga foreldra og nemendur og því var Fræðslugáttin sett upp til að auðvelda þeim aðgengi að rafrænu námsefni. Allt rafrænt efni sem í boði er hjá stofnuninni er sett þar fram og hægt að nálgast eftir aldursstigum en auk þess var meira efni bætt við vegna breyttra aðstæðna,“ segja Harpa og Andrea Anna.
Aukið aðgengi að rafrænu efni
Ráðist var í að setja fleiri lestrarbækur á rafbókaform og gera verkefni með þeim aðgengileg á vefnum, eins og t.d. bækur í flokkunum Smábók og Listin að lesa og skrifa fyrir yngsta stig. Nokkrar bækur í flokknum Auðlesnar sögubækur fyrir unglingastig eru nú á rafbókarformi ásamt fleiri bókum sem áður voru eingöngu í boði prentaðar. Fræðslumyndir sem hafa verið aðgengilegar fyrir skóla eru öllum opnar á meðan þetta ástand varir.
„Við auglýstum eftir gagnlegu og áhugaverðu efni frá kennurum og fleiri aðilum sem við síðan gerðum aðgengilegt inni á Fræðslugáttinni, undir Annað efni. Við áttum í góðu samstarfi við skólasamfélagið en allir lögðust á eitt að skapa nemendum sem bestar aðstæður á þessum óvenjulegu tímum. Mennta- og menningarmálaráðuneytið fór af stað með lestrarátakið Tími til að lesa þar sem markmiðið var að setja heimsmet í lestri og RÚV stóð fyrir Mennta-RÚV með dagskrá fullri af efni fyrir börn og ungmenni. Vísað var í þetta efni í fræðslugáttinni.“
Þær segja það ánægjulegt að auðsótt mál hafi verið að fá leyfi hjá erlendum forlögum til að heimila birtingu á ýmsu efni sem áður var á læstu svæði kennara.
Betri yfirsýn yfir námsefni
Þær segja að fyrst og fremst gefi Fræðslugáttin yfirsýn yfir það námsefni Menntamálastofnunar sem til er á rafrænu formi, þar sem efnið er allt aðgengilegt á einum stað. Margir kennarar hafi útbúið stundatöflur eða dagbækur fyrir nemendur með fjölbreyttum verkefnum þvert á greinar eins og t.d. hreyfingu, lestur, uppskrift til að fara eftir, myndasögugerð, að kynna sér fugl á Fuglavefnum, syngja, teikna og svona mætti áfram telja.
„Stuðningur við foreldra felst í því að efnið er aðgengilegt hvar og hvenær sem er þar sem er nettengd tölva. Þeir geta farið inn á Fræðslugáttina og sótt rafbækur, hljóðbækur, fræðslumyndir og verkefni. Dæmi um efni fyrir yngstu nemendurna er Smábókaskápurinn en markmið hans er að þjálfa lestur, efla lesskilning og lestraráhuga og gefa börnum tækifæri til að nota tölvu sér til gagns og á skipulegan hátt. Foreldrar geta átt notalega lestrarstund með barninu sínu þar sem hægt er að lesa bækurnar og hlusta á þær upplesnar í leiðinni, svara síðan spurningum og spreyta sig á verkefnum.“
Þá benda þær á að tilvalið sé fyrir nemendur að þjálfa ýmsa færni í gegnum námsleiki, hvort sem er í dönsku, stærðfræði eða íslensku. Klukkuvefurinn sé sívinsæll en hann hjálpi nemendum að læra á skífuklukku og tölvuúr. Það sé því af mörgu að taka.
Hefur hjálpað nemendum í sóttkví eða einangrun
„Við fengum mörg skilaboð frá ánægðum kennurum, foreldrum og bókasafnsfræðingum um að Fræðslugáttin hefði komið sér vel á meðan skólahald var með skertum hætti. Kennarar vísuðu á rafbækur í auknum mæli sem sparaði vinnu við að sótthreinsa hverja einustu bók eftir skil. Foreldrar urðu einnig meðvitaðri um að þær væru til staðar, sem og ýmsar hljóðbækur.“
Einnig hjálpaði þetta skólum sem þurftu að loka fyrirvaralaust við að skipuleggja skólahaldið og halda uppi kennslu, líkt og kom fram í könnun sem Menntavísindasvið Háskóla Íslands gerði á áhrifum COVID-19 á skólastarf. Hún auðveldaði heimanám barna ef þau voru í sóttkví eða einangrun og þau gátu nálgast námsefnið án þess að hafa mikið fyrir því en samkvæmt könnuninni jókst heimanám mikið.
„Það er líka gaman að segja frá því að eldri borgari hafði samband og lýsti yfir ánægju sinni með að efnið væri aðgengilegt en hann kynnti sér ensku og ítalíuskrift,“ segja þær.
Opin svo lengi sem þörf er á
Nú er óvíst hvernig veturinn verður og hvort kennsla í skólum verði með eðlilegu móti. Má búast við því að kennarar og heimilin geti nýtt sér Fræðslugáttina áfram? „Það er ánægjulegt að segja frá því að ákvörðun hefur verið tekin um að Fræðslugáttin verði opin þetta skólaár eða svo lengi sem þörf er á,“ segja þær Harpa og Andrea Anna að lokum.
Viðtalið var birt í Skólavörðunni, 1. tbl. 2020