Breytt og bætt kennaranám í Danmörku

Fréttir|5. janúar 2023

Umtalsverðar breytingar verða gerðar á námi danskra kennaranema á næstu árum; breytingar sem þingmenn á danska þinginu samþykktu skömmu fyrir þingkosningarnar í byrjun nóvember á síðasta ári.

Umræða um kennaranám og kennslu í grunnskólum Danmerkur er ekki ný af nálinni. Á undanförnum árum, og áratugum reyndar, hafa fjölmargar nefndir á vegum stjórnvalda og kennarastéttarinnar rætt um nauðsyn úrbóta á kennaranáminu. Ástæðurnar eru þær að Danir hafa lengi staðið nágrannaþjóðunum langt að baki á þessu sviði, bæði hvað varðar grunnnámið og endurmenntun. Í grein sem birtist í Skólavörðunni haustið 2021 undir yfirskriftinni „Danir aftarlega á menntunarmeri kennara“ var meðal annars sagt frá nýlegri rannsókn. Hún sýndi svo ekki varð um villst að áhyggjur af kennaranáminu voru ekki ástæðulausar. Rannsóknarstofnunin Damvad Analytics gerði rannsóknina fyrir ráðgjafarnefnd danska menntamálaráðuneytisins. Mörgum þingmönnum sem fjölmiðlar ræddu við var brugðið þegar þeir sáu niðurstöður rannsóknarinnar.

Kennaranámið í Danmörku tekur fjögur ár. Meðal þess sem lengi hefur verið rætt um varðandi úrbætur er að lengja námið í fimm ár. Í tíð ríkisstjórnar Lars Løkke Rasmussen (2015–2019) var skipuð nefnd sem ætlað var að skoða þessa leið. Eftir að ríkisstjórn Mette Frederiksen tók við árið 2019 var nefndin lögð niður en stofnaður þróunarhópur, eins og menntamálaráðherra komst að orði. Sá hópur skilaði fyrr á þessu ári tillögum sínum til ráðherra og það samkomulag sem meirihluti danskra þingmanna samþykkti skömmu fyrir kosningar byggir á þessum tillögum.

Aðalatriði samkomulagsins

  1. Vikulegur kennslutími lengist um tvær til fjórar kennslustundir.
  2. Starfsnámið verður lengt um þriðjung og verður á öllum námsárunum fjórum.
  3. Sveitarfélögin fá fleiri verkefni sem tengjast starfsnáminu og menntun leiðbeinenda í starfsnámi.
  4. Nemendur eiga að fá meiri endurgjöf og meiri leiðbeiningar, meðal annars með faglegum samtölum.
  5. Nemendur fá meiri æfingamiðaða kennslu, til dæmis við bekkjarkennslu og sömuleiðis kennslu í samskiptum heimila og skóla.
  6. Sérkennsla verður sérstök námsgrein innan kennaranámsins.
  7. Náminu lýkur með sérstöku B.A. prófi sem samanstendur af umfangsmiklu skriflegu verkefni og munnlegu prófi. Á námstímanum verða samtals tíu starfsmiðuð (professionsrettede) próf.
  8. Námslýsingar, sem núna eru margar og ítarlegar, verða einfaldari og markvissari til að kennarar fái meira frelsi í kennslunni.
  9. Núverandi áfangafyrirkomulag (modulopbygning) verður lagt af og einstakar greinar verði þungamiðjan. Það á að auka samkennd í náminu og draga úr brottfalli.

Samkvæmt tillögunum eykst hinn verklegi hluti námsins og verður um það bil 17 prósent. Ýmislegt fleira var nefnt í tillögum þróunarhópsins, meðal annars þörfin fyrir nánara samhengi daglegs starfs í skólanum og kennaranámsins.

Gert er ráð fyrir að þetta nýja og breytta kennaranám taki gildi á næsta skólaári, sem hefst í ágúst 2023.

Hluti samkomulags þingmanna var að festa viðbótarfjárveitingar. Á næsta ári nemur sú upphæð 125 milljónum danskra króna (2,5 milljörðum íslenskum), en frá og með árinu 2024 verður árleg upphæð 200 milljónir (4 milljarðar íslenskir).

Dugir þetta?

Þessa spurningu lagði danskt dagblað fyrir Gordon Ørskov Madsen, formann Dönsku kennarasamtakanna. Hann svaraði því til að þetta væri vissulega skref í rétta átt, þótt fjárveitingarnar mættu vissulega vera meiri. Hann sagðist líka vera mjög ánægður með að ráðherrann hefði ákveðið að sérstakur eftirlitshópur myndi fylgjast með kennslunni eftir að nýja fyrirkomulagið tæki gildi.

Sífellt fleiri leita annað að námi loknu

Á síðustu 20 árum hefur nýútskrifuðum kennurum sem ráða sig til kennslu fækkað. Af þeim sem útskrifuðust síðastliðið vor réðu 55 prósent sig til starfa í skólum landsins en 45 prósent réðu sig til annarra starfa eða hugðu á frekara nám. Eitt dönsku dagblaðanna spurði allmarga nýútskrifaða kennara, sem voru komnir í aðra vinnu en kennslu, um ástæður þess að þeir höfðu valið önnur störf. Svörin voru mismunandi, sumir sögðust ekki telja sig hafa fengið nægilega góðan undirbúning í náminu, aðrir nefndu launin og enn aðrir að kennarastarfið höfðaði ekki til þeirra.

Árið 2018 voru 3.539 nýnemar skráðir í kennaranám í Danmörku. Brottfall úr þessum hópi var tæplega þriðjungur á námstímanum. Það er hærra hlutfall en í flestum öðrum greinum í háskólanámi.

Sú staðreynd að færri útskrifaðir kennarar koma til starfa í skólum landsins hefur haft í för með sér að æ fleiri sem ráðnir eru til starfa í dönskum grunnskólum hafa ekki kennsluréttindi. Hlutfall þeirra hefur farið hækkandi og nú er svo komið að meira en þriðjungur allra kennara í dönskum grunnskólum er án kennaramenntunar. Langflestir úr þeim hópi hafa lokið stúdentsprófi og margir koma beint úr menntaskóla og stoppa stutt við í kennslunni.

Formaður kennarasamtakanna sagði í viðtali þetta valda erfiðleikum, bæði tíð kennaraskipti og svo hitt að manneskju með stúdentspróf skorti fagþekkinguna þótt hún leggi sig alla fram og geri sitt besta.

Alls höfðu 45 prósent nýútskrifaðra kennara síðasta vor hafa ráðið sig í önnur störf en kennslu.

Sums staðar meira en helmingur án réttinda

Eins og nefnt var hér á undan er meira en þriðjungur allra kennara í dönskum grunnskólum án réttinda til kennslu. Sums staðar er hlutfallið mun hærra, jafnvel 60 prósent.

Í áðurnefndu viðtali við formann kennarasamtakanna kom fram að í dag eru að minnsta kosti 28 þúsund kennaramenntaðir einstaklingar sem ekki starfa við kennslu. Þarna eru ekki meðtaldir þeir sem náð hafa eftirlaunaaldri.

„Ég kann ekki ráðin en við þurfum að ná þessum hópi, eða hluta hans inn í skólana,“ sagði Gordon Ørskov Madsen og bætti við að ástandið væri óviðunandi. Hann sagði enn fremur að kennarar sem séu nýbyrjaðir í starfi kvarti yfir að þeir fái ekki nauðsynlegan stuðning í upphafi. Þetta sé ein ástæða þess að svo margir hrökklist úr kennslunni, þeim finnist þeir ekki ráða við starfið og gefist upp.

Sama sagan hjá leikskólunum

Í leikskólunum er svipaða sögu að segja. Samkvæmt upplýsingum frá Damvad Analytics vantar um þessar mundir rúmlega 4 þúsund leikskólakennara með réttindi í Danmörku.

Sé litið fram á við blasir við enn dekkri mynd því árið 2030 er talið að það muni vanta samtals 14 þúsund leikskólakennara í landinu. Á næstu 10 árum mun börnum á leikskólaaldri fjölga um 55 þúsund, samkvæmt spám. Núna er rétt um helmingur leikskólakennara með réttindi og þeim sem hefja nám fækkar. Um 11 þúsund menntaðir leikskólakennarar eru í öðrum störfum. Samkvæmt upplýsingum frá Lífeyrissjóði leikskólakennara komast 4 af hverjum 10 leikskólakennurum á eftirlaunaaldur á næstu 5 til 10 árum.

Leikskólakennarar fara að jafnaði einu ári fyrr á eftirlaun en aðrar stéttir og 6 af hverjum 10 eru ekki í fullu starfi og segja álagið og vinnuaðstæðurnar ástæðuna. Í rannsókn sem samtök leikskólakennara (BUPL) gerðu nýlega sögðust 9 af hverjum 10 myndu verða lengur í starfi og fara seinna á eftirlaun ef vinnuskilyrðin væru betri.

Greinin birtist í Skólavörðunni, 2. tbl. 2022