Breytingaskeiðið er viðkvæmt umræðuefni

Allar konur ganga í gegnum breytingaskeið á einn eða annan hátt. Einkenni og afleiðingar eru margbreytileg og hver kona upplifir breytingaskeiðið á sinn einstaka hátt; sumar sigla tiltölulega létt í gegnum þetta á meðan aðrar glíma við lífshamlandi einkenni,“ segir Halldóra Skúladóttir markþjálfi í nýjasta tölublaði Skólavörðunnar.
Alls voru 59 þúsund konur á aldrinum 40 til 65 ára í byrjun ársins. Halldóra segir það vera þann aldur þegar einkenni breytingaskeiðs geti valdið hvað mestum vandræðum. „Konur á þessum aldrei eru oftast búnar með barneignir, hafa menntað sig og komið sér fyrir á vinnumarkaði þegar breytingaskeiðið hefst.“
Samkvæmt könnun á 3.800 konum, sem var gerð af Newson Health Research and Education í Bretlandi, sögðust um 76% kvenna finna fyrir meðal til mjög miklum einkennum og í sömu könnun sögðust rúmlega 90% kvenna ekki geta leitað til yfirmanns síns varðandi einkenni og stuðning. Um 59% kvenna höfðu tekið leyfi frá vinnu, 18% minnkuðu starfshlutfall og 12% hættu störfum vegna áhrifa sem einkennin höfðu á starfsgetu. Í sömu könnun sögðu 41% kvenna að einkenni breytingaskeiðsins leiddu til meiri mistaka í starfi.
„Þetta eru sláandi tölur,“ segir Halldóra og bætir við að flestir vinnustaðir séu með ýmsar viðbragðsáætlanir til að skapa öryggi fyrir starfsfólk, svo sem er kemur að einelti, kynbundinni eða kynferðislegri áreitni, ofbeldi, fjarvistum og veikindum. „Það er afar mikilvægt að taka þessar áætlanir til skoðunar og aðlaga þær að þeim afleiðingum sem geta myndast vegna einkenna breytingaskeiðsins. Áhrif breytingaskeiðsins geta hafa mikil áhrif á konur og því er brýnt að sérsníða viðbragðsáætlanir og gátlista er lúta að þessu skeiði í lífi kvenna á vinnumarkaði,“ segir Halldóra.
Alltof margir dagar tapast
„Mannauður er ein mikilvægasta auðlind fyrirtækja og vinnuveitendur vilja gera sitt besta til að laða að og halda í gott starfsfólk – og gera sér grein fyrir kostnaðinum sem fylgir því að missa starfsfólk vegna veikinda, hvort sem er til skemmri eða lengri tíma,“ segir Halldóra.
Talið er að um 14 milljón vinnudagar tapist á Bretlandi á ári hverju vegna einkenna breytingaskeiðsins. Halldóra segir að ef þessi tala sé heimfærð yfir á Ísland þá megi gera ráð fyrir að 75 þúsund vinnudagar tapist árlega. „Með því að vera með vel útfærða áætlun um viðbrögð vegna breytingaskeiðs geta vinnustaðir tryggt að allt starfsfólk sem á í hlut upplifi skilning og njóti stuðnings yfirmanna og samstarfsmanna.“
Fræðsla og umræða um breytingaskeiðið er mikilvæg að mati Halldóru. „Breytingaskeiðið hefur verið geymt í myrkrinu og því hefur oft og tíðum fylgt skömm og um leið skortur á skilningi og stuðningi. Ef við ætlum að snúa við þeim fordómum sem konur á breytingaskeiði hafa mætt hingað til þarf fræðslu fyrir allt starfsfólk, umræðan þarf að vera styðjandi og búa þarf til umhverfi sem er öruggt, þannig að kona geti leitað til yfirmanna án þess að óttast útskúfun eða smánun,“ segir Halldóra.
Breytingaskeiðið er, að sögn Halldóru, viðkvæmt umræðuefni og brýnt að það sé rætt á nærgætinn hátt svo engum finnist spjótum beint að sér. „Þetta má gera með því að bjóða upp á fræðsluerindi á vinnustaðnum, skapa umræðu á starfsmannafundum og fjalla um málið í fréttabréfum, svo dæmi séu tekin. Markmiðið á að vera að öllum sé kunnugt hverjar boðleiðirnar eru og hvert á að leita eftir aðstoð og stuðningi. Það getur verið hjálplegt að útnefna ákveðinn aðila sem „breytingaskeiðs-aðila“. Það er þá aðili sem hefur fengið þjálfun og öðlast skilning á einkennum og afleiðingum breytingaskeiðsins. Verkefnið er að finna lausnir fyrir hvern einstakling.“

Mannauður er ein mikilvægasta auðlind fyrirtækja og vinnuveitendur vilja gera sitt besta til að laða að og halda í gott starfsfólk – og gera sér grein fyrir kostnaðinum sem fylgir því að missa starfsfólk vegna veikinda, hvort sem er til skemmri eða lengri tíma.
Viðbrögð skipta máli
Halldóra segir að góð viðbragðsáætlun geti haft í för með sér að konur eigi auðveldara með að leita aðstoðar og á sama tíma sé stjórnendum gert kleift að bregðast skjótt við, grípa inn í og minnka þar með líkurnar á að viðkomandi endi í veikindum eða detti beinlínis út af vinnumarkaði. „Það þarf oft litlar breytingar á vinnustað til að gera líf kvenna sem glíma við breytingaskeiðið bærilegra. Því fyrr sem brugðist er við, því betra,“ segir Halldóra.
Hún segir jafnframt að góð áætlun geti verið til þess fallin að tryggja rétt kvenna og koma í veg fyrir að þeim sé mismunað með ólögmætum hætti.
Vakning víða um heim
„Við stöndum frammi fyrir þeirri staðreynd að stórt skarð getur myndast í atvinnuþátttöku kvenna sem eru á breytingaskeiðsaldri. „Sem betur fer hefur orðið mikil vakning um þetta málefni víða um heim á síðustu árum. Konur og samfélagið í heild eru í miklum mæli að átta sig á hversu víðtæk áhrif þetta lífsskeið getur haft og hversu lítið vægi það hefur fengið í samfélagsumræðunni og inni á vinnustöðunum. Þetta skarð sem hefur myndast í þátttöku kvenna á vinnumarkaði er ekki bara slæmt fyrir fyrirtækin og stofnanirnar heldur ekki síður konurnar sjálfar, réttindi þeirra og félagslega og fjárhagslega stöðu. Konur eru duglegar að mennta sig og má nefna að árið 2016 var tæplega helmingur kvenna á aldrinum 25-64 ára með háskólapróf, samanborið við þriðjung karla á sama aldri. Það er því ljóst að með brottfalli kvenna af vinnumarkaði tapast dýrmætt hugvit,“ segir Halldóra Skúladóttir.
Efni um breytingaskeiðið á vef KÍ
Á vef KÍ má finna upplýsingar um einkenni, viðbrögð og áhrif vinnuumhverfis á breytingaskeiðið. Uppbygging upplýsinganna er á sömu leið og aðrar áætlanir sem útbúnar hafa verið hjá KÍ. Upplýsingarnar eru unnar í samvinnu við Halldóru Skúladóttur og fengnar af vef hennar, kvennarad.is.
Uppsetning og textagerð var í höndum Sigrúnar Birnu Björnsdóttur, sérfræðings KÍ í vinnuumhverfis- og jafnréttismálum, en áætlun af þessu tagi snertir báða þá málaflokka. Í áætluninni má finna nákvæmar upplýsingar, yfirlit yfir helstu einkenni og nokkrar hugmyndir að forvörnum. Eins er þar að finna spurningar sem nýta má við þarfagreiningu og tillögur að áhættu- og kostnaðarmati.
Að lokum má finna leiðarvísi að viðbrögðum og tillögur að samtölum. Við mælum með að farið sé markvisst í gegnum þessa viðbragðsáætlun með starfsmannahópnum því þannig fæst skýr mynd af því sem betur mætti fara í vinnuumhverfi og hvaða áhrif aðgerðaleysi getur haft á vinnustaðinn. Frekari upplýsingar og fræðslu veitir Sigrún Birna, sérfræðingur KÍ í vinnuumhverfis- og jafnréttismálum.
Greinin birtist í 1. tbl. Skólavörðunnar 2023.