Breytingaskeiðið – eitthvað sem allir þurfa að þekkja!

Fréttir|3. febrúar 2023
Pistill

Viltu kynna þér breytingaskeiðið? Af hverju skiptir máli að þekkja það á vinnustaðnum?

Kennarasamband Íslands hefur tekið saman fræðsluefni fyrir stjórnendur og starfsfólk skóla svo gera megi breytingaskeiðið eins eðlilegt á vinnustað og kostur er. Vinnustaðir þurfa að gefa þörfum kvenna gaum enda er breytingaskeiðið vinnuumhverfis- og jafnréttismál, flestir munu ganga í gengum tímabilið eða eiga einhvern nákominn sem gengur í gegnum það. Þekking, fræðsla og tillitssemi skiptir máli því nú árið 2023 er tíminn þess að bíta á jaxlinn liðinn, það eru til bjargráð.

Árið 2022 var ár breytingaskeiðsins. Þá var loksins farið að ræða tímabilið sem öll þau sem fæðast með kvenkyns æxlunarfæri (hér eftir nefnt kona) ganga í gengum. Fram að þeim tíma hefur þetta tímabil frekar verið haft í flimtingum en tekið alvarlega og mætti flokka það sem kynbundna áreitni sem hefur því miður orsakað skömm, ráðaleysi og þöggun meðal kvenna. Núna er þessu náttúrulega tímabili loksins sýndur skilningur, bjargráðin rædd og augu allra að opnast fyrir þeim óstjórnlegu breytingum sem verða í líkama og lífi þeirra sem ganga í gengum þetta tímabil. Grunur leikur á að konur á breytingaskeiði hafi verið misgreindar með einhverja ótengda kvilla og sumar dæmdar úr leik „að ósekju“ og farið í veikindaleyfi.  

Tímabilið fyrir tíðalok sem kallað hefur verið breytingaskeið eða tíðahvörf (perimenopause) getur varað í tvö til tíu ár en það er mjög einstaklingsbundið og óvíst að það uppgötvist á fyrstu stigum. Einkenni þessa tímabils geta verið afar væg en sumar konur upplifa mikil einkenni, og jafnvel andlega erfiðleika. Mikilvægt er að hver kona kynni sér einkenni, leiti til læknis og fái aðstoð en allra mikilvægast er að konur séu sérfræðingar í sínum eigin líkama og sér sjálfum, gefi líkamlegri og andlegri líðan gaum og fari leið hinnar mestu mildi þegar kemur að þessu lífsskeiði.  

Hér er hægt að kynna sér breytingaskeiðið nánar og erindi þess á vinnustaðnum. Fyrir neðan má sjá skýringarmynd með þremur stigum breytingaskeiðsins.