Breytingar gerðar á samræmdum prófum

Fréttir|1. júlí 2021

Hefðbundin samræmd könnunarpróf verða ekki lögð fyrir nemendur á hausti komanda. Ný hæfnimiðuð próf taka við vorið 2022.

Mennta- og menntamálaráðuneytið hefur ákveðið að grunnskólanemendur, í 4., 7. og 9. bekk, munu geta tekið ný hæfnimiðuð samræmd könnunarpróf vorið 2022. Hefðbundin samræmd próf verða því ekki lögð fyrir þessa sömu nemendur næsta haust. 

„Fyrirlögn þessi verður fyrsta skrefið í átt að nýju fyrirkomulagi samræmds námsmats fyrir nemendur í grunnskólum. Meginmarkmið þess er að veita nemendum gagnlegar upplýsingar um námslega stöðu þeirra og vera kennurum, nemendum og foreldrum til leiðsagnar um áherslur í námi," segir í frétt á vef stjórnarráðsins.

Þar segir jafnframt að unnið verði að þróun nýs námsmats á grundvelli skýrslu sem fjölmennur hópur fulltrúa skólasamfélagsins vann að. Í skýrslunni er meðal annars lagt til að þróað verði heildstætt safn matstækja í mörgum námsgreinum með áherslu á fjölbreytt verkefni sem lögð verða fyrir með sveigjanlegri hætti en tíðkast hefur.

„Slíku námsmati er ætlað að vera leiðbeinandi og koma sem best til móts við fjölbreytta kennsluhætti," segir í frétt stjórnarráðsins.

Menntamálaráðherra, Lilja Alfreðsdóttir, segir þetta mikilvægt skref fyrir skólasamfélagið sem lengi hafi kallað eftir breytingum á fyrirkomulagi samræmdra prófa. „Mikilvægast í þessu samhengi er að við færum áhersluna skýrar á þarfir nemendanna og þá endurgjöf sem gagnast þeim best til að bæta sinn árangur í námi," segir ráðherra. 

Verkefnastjórn á vegum ráðuneytis menntamála og Menntamálastofnunar, ásamt fulltrúum skólasamfélagsins, mun stýra þróun hins nýja matsferils.