Breytingar á tónlistarkennslu í tengslum við COVID-19

Styrkur úr Rannsóknasjóði KÍ nýttist til að skoða hvernig tónlistarkennsla í samkomubanni var færð yfir í fjarkennslu og hvernig reynsla tónlistarkennara var af þeim breytingum.
Ingunn Jónsdóttir (MA) og Karen Karólínudóttir (MPH), hlutu styrk úr Rannsóknasjóði Kennarasambands Íslands til að skoða hvernig tónlistarkennsla í samkomubanni var færð yfir í fjarkennslu og reynslu tónlistarkennara af þeim breytingum. Einnig að safna upplýsingum um hvaða leiðir tónlistarkennarar telja æskilegar og hvað ber að forðast við skipulag fjarkennslu ef svipað ástand skapast aftur í íslensku samfélagi. Enn fremur að kanna líðan tónlistarkennara á þessum tíma. Spurningalisti var sendur til allra tónlistarkennara á landinu.
Þegar samkomubann var sett á vorönn 2020 þurftu tónlistarkennarar fyrirvaralaust að finna leiðir til að komast í samband við nemendur í gegnum fjarkennslubúnað.
Niðurstöður rannsóknarinnar sýndu að langflestir tónlistarkennarar þurftu sjálfir að útvega búnaðinn sem þeir notuðu og fór kennslan í flestum tilfellum fram á heimili þeirra.
Flestir þátttakendur rannsóknarinnar notuðust við Facetime, Messenger, Skype og Zoom. Ekki má ráða af niðurstöðunum að einn búnaður hafi reynst betur en annar. Þátttakendur voru almennt neikvæðari þegar þeir mátu hljóðgæði en myndgæði en meira en helmingur þeirra mat hljóðgæði slæm eða mjög slæm. Helstu erfiðleikar við fjarkennsluna fólust í því að hljóð barst seint og erfitt eða ómögulegt var að spila og syngja með nemendum. Einnig var flóknara að leiðrétta líkamsstöðu og leiðbeina nemendum á sama hátt og undir venjulegum kringumstæðum.
Flestir nemendur gátu nýtt sér fjarkennslu en þó voru sumir nemendur sem höfðu ekki aðgang að viðeigandi tölvubúnaði og notuðust eingöngu við síma með ófullnægjandi hljóð- og myndgæðum. Skortur á tækjabúnaði kom jafnvel alveg í veg fyrir fjarkennslu. Mæting nemenda var almennt góð, jafnvel betri en í hefðbundna kennslu. Þátttakendur rannsóknarinnar mátu það svo að flestum nemendum hefði gengið vel að taka leiðbeiningum í gegnum fjarkennslubúnað og að einbeiting þeirra hefði verið góð.
Kennarar voru almennt ánægðir með hvernig til tókst en þeim leið ekki vel og upplifðu þreytu og líkamleg einkenni í meira mæli en í hefðbundinni kennslu. Eldri kennarar fundu fyrir meiri þreytu en yngri kennarar en ekki fannst munur eftir kyni, starfshlutfalli eða menntun. Körlum leið að meðaltali betur en konum og tónlistarkennurum utan höfuðborgarsvæðisins leið betur en tónlistarkennurum á höfuðborgarsvæðinu.
Í eðlilegu árferði í framtíðinni taldi tæplega þriðjungur þátttakenda sennilegt að þeir muni nýta sér fjarkennslubúnað, flestir þó sem neyðarúrræði þegar staðkennslu verður ekki komið við. Kennarar á landsbyggðinni sáu frekar fyrir sér að kenna fjarkennslu í framtíðinni en kennarar á höfuðborgarsvæðinu.
Ljóst er að að þessi reynsla felur í sér tækifæri til að læra nýjar leiðir í tónlistarkennslu en hvort að sú þekking sem varð til muni breyta starfsháttum tónlistarkennara mun framtíðin ein leiða í ljós.