Breytingar á þjónustu við félagsfólk KÍ

Fyrirkomulag í móttöku á skrifstofu KÍ og afgreiðsla erinda tekur breytingum frá og með miðvikudeginum 17. desember næstkomandi.
Móttaka á skrifstofu KÍ, við Borgartún 30, verður opin frá 10 til 12 virka daga. Hið sama á við almenna símsvörun en félagsfólk getur haft samband, í síma 595 1111, á milli 10 og 12 virka daga. Henti þessi tími ekki þá getur félagsfólk, hvenær sem er sólarhrings, sent erindi á Mínum síðum, á vef KÍ, og óskað eftir símtali utan hins almenna afgreiðslutíma.
Orlofssjóður verður undanskilinn þessum breytingum og áfram hægt að fá aðstoð símleiðis á milli klukkan 10 og 15 virka daga í síma 595 1192.
Með þessum breytingum er leitast við að starfsfólk KÍ komi eins undirbúið og hægt er til samtals við félagsfólk og veiti á þann hátt því enn betri þjónustu.
Það kemur sjálfsagt fáum á óvart að félagsfólk KÍ er fyrir löngu orðið vant að nota Mínar síður og þar fara samskipti að langmestu leyti fram. Kennarasambandið hefur fyrir nokkru hætt að taka við persónugreinanlegum upplýsingum með tölvupósti og biður félagsfólk að senda slík gögn í gegnum Mínar síður.
Markmiðið með því að beina samskiptum inn á Mínar síður er að efla faglega og örugga þjónustu við félagsfólk. Hver félagi hefur sitt einkasvæði á Mínum síðum sem gerir viðkomandi auðvelt um vik að hafa góða yfirsýn yfir erindi, fyrirspurnir, styrkumsóknir, skráningu á námskeið og svo framvegis.
Breytingarnar nú eru gerðar í tilraunaskyni og verður staðan metin á vordögum. Nú sem áður er markmiðið ávallt það sama – að veita félagsfólki KÍ bestu mögulegu þjónustu á öllum sviðum.