Breytingar á skólastarfi
Fréttir|30. október 2020

Reglugerð verður unnin um helgina í samstarfi menntamálaráðherra og heilbrigðisráðherra.
Á upplýsingafundi stjórnvalda kom fram að breytingar eru framundan á skólastarfi. Reglugerð verður unnin um helgina í samstarfi menntamálaráðherra og heilbrigðisráðherra.
Stjórn KÍ mun funda með stjórnvöldum í dag og um helgina og verða nánari upplýsingar sendar á félagsfólk um leið og þær liggja fyrir og birtar hér á vefnum.