Breytingar á símatíma og afgreiðslu sjóða
Fréttir|13. júní 2016
Símatími þjónustufulltrúa í sjúkra-, orlofs- og endurmenntunarsjóðum Kennarasambands Íslands verður frá klukkan 13 til 16 frá og með 14. júní til og með 8. júlí næstkomandi. Formleg sumarlokun Kennarahússins hefst mánudaginn 11. júlí og stendur venju samkvæmt í þrjár vikur. Skrifstofa KÍ verður opnuð á nýjan leik að morgni þriðjudagsins 2. ágúst.
Þjónustufulltrúar munu eftir bestu getu afgreiða allar umsóknir, sem berast fyrir 20. júní, áður en sumarlokun hefst.
Hægt verður að hafa samband við Orlofssjóð á meðan á sumarlokun stendur. Símatími verður alla virka daga frá klukkan 9 til 12, í síma 595 1170.