Breytingar á reglum sjúikrasjóðs
Fréttir|25. september 2026

Breytingar verða gerðar á reglum sjúkrasjóðs og taka þær gildi 1. október.
Eftirfarandi breytingar verða á reglum sjúkrasjóðs sem taka gildi þann 1. október:
Meðferðarstyrkur breytist á þann hátt að eingöngu verður hægt að sækja um styrk vegna meðferðar hjá hnykki (kírópraktor), osteopata, sálfræðingi og sjúkranuddara.
- Styrkur vegna læknisfræðilegrar endurhæfingar á Heilsustofnun NLFÍ hækkar úr 5.000 kr. á dag í 6.000 kr.
- Hámarksstyrkur vegna gleraugnakaupa hækkar úr 60.000 kr í 70.000 kr.