Breytingar á reglum endurmenntunarsjóða

Fréttir|3. júlí 2025

Styrkir hækka hjá Vísindasjóði FL/FSL og Vonarsjóði FG/SÍ um miðjan ágúst.

Breytingar verða á reglum endurmenntunarsjóða grunnskólans og leikskólans um miðjan ágúst. Um er að ræða hækkun styrkja hjá Vísindasjóði FL/FSL og Vonarsjóði FG/SÍ. Félagsfólk er hvatt til að kynna sér reglur sjóðanna. 


Vísindasjóður FL/FSL

Vísindasjóður FL/FSL hækkar einstaklingsstyrki sjóðsins um 50 þúsund krónur 15. ágúst næstkomandi. Styrkupphæð verður 400 þúsund krónur á tveggja ára tímabili.  

Hópstyrkur hækkar í 200.000 krónur á 4 ára fresti, sama hvert farið er. Þetta á við um ferðir sem eru farnar eftir 15. ágúst 2025.

Að auki eru gerðar minni háttar orðalagsbreytingar á nokkrum greinum sjóðsins.

Vonarsjóður FG/SÍ

Eftirfarandi breytingar á reglum Vonarsjóðs, starfsþróunarsjóðs FG og SÍ, taka gildi 15. ágúst 2025.

Upphæð starfsmenntunarstyrks í A hluta skv. lið a í grein 3.1., hækkar úr 400.000 krónum í 550.000 krónur á tveggja ára tímabili frá 15. ágúst.

Upphæð vegna aksturs félagsmanna á höfuðborgarsvæðinu til og frá Keflavíkurflugvelli hækkar úr 3.000 krónum í 4.000 krónur hvora leið. 

Þá hafa verið gerðar orðalagsbreytingar á nokkrum greinum sjóðsins. Hægt að skoða betur hér.

 

Starfsfólk sjóðasviðs KÍ vill vekja athygli á eftirfarandi:

  • Styrkir eru greiddir í einu lagi og þurfa öll gögn að koma í sömu umsókn
  • Nafn umsækjanda verður að sjást á öllum gögnum
  • Ekki er hægt að sækja um viðbót vegna áður greiddra styrkja
  • Hægt er að skoða stöðu umsókna á Mínum síðum
  • Hægt er að senda fyrirspurnir á Mínum síðum