Breytingar á aðalnámskrá leikskóla kynntar
Fréttir|9. ágúst 2023

Mennta- og barnamálaráðuneytið efnir til fundaraðar um breytingar á aðalnámskrá leikskóla sem taka gildi um næstu mánaðamót.
Breytingarnar á aðalnámskrá leikskóla skýra nánar hlutverk leiksins sem námsleið leikskólans og hvernig meta megi með reglubundnum hætti, og með virkri þátttöku barna, viðhorf, líðan og stöðu þeirra. Breytingar taka gildi 1. september.
Umfjöllun um eftirtalin atriði er að finna í breyttri námskrá:
- sjálfsprottinn leik barna og hann skilgreindur,
- yngstu börnin í leikskólum,
- áhrifamátt barna og trú þeirra á eigin getu (valdefling),
- jöfnun félags- og menningarlegra aðstæðna barna (inngildi),
- mikilvægi þess að tilheyra leikskólasamfélaginu (fullgildi),
- skapandi leikskólastarf með opið og sveigjanlegt skipulag þar sem fjölbreyttar námsaðferðir og leikur barna eru í forgrunni,
- hlutverk og ábyrgð leikskólakennara og starfsfólks,
- mat á námi barna í gegnum leik sem er meginnámsleið barna.
Mennta- og barnamálaráðuneytið efnir til fundaraðar þar sem þessi atriði verða rædd. Björk Óttarsdóttir og Guðrún Alda Harðardóttir munu kynna breytingarnar.
Fundaáætlun er þessi
- Höfuðborgarsvæðið
Þriðjudaginn 15 ágúst kl. 15:30 í Skriðu á Menntavísindasviði Háskóla Íslands við Stakkahlíð, Reykjavík - Vesturland
Fimmtudaginn 17. ágúst kl. 15:30 á Hótel B59 við Borgarbraut, Borgarnesi - Vestfirðir
Þriðjudaginn 22 ágúst kl. 15:00 í Edinborgarhúsinu, Ísafirði - Reykjanes
Fimmtudaginn 24. ágúst kl. 15:30 í Hljómahöllinni (Bergið) í Reykjanesbæ - Norðurland
Miðvikudaginn 6. september kl. 15:30 í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri - Austurland
Fimmtudaginn 7. september kl. 15:30 á Hótel Héraði, Egilsstöðum - Höfuðborgarsvæðið
Þriðjudaginn 12. september kl. 15:30 í Salnum, Tónlistarhúsi Kópavogs - Suðurland
Miðvikudaginn 13. september kl. 15:30 á Hótel Vatnsholti í Villingaholti, Árnessýslu - Allt landið – fjarfundur á Teams
Þriðjudaginn 19. september kl. 15:30
Smelltu hér til að tengjast fundinum