Bregðast verður við áður en skaðinn verður meiri
Stjórn Félags skólastjórnenda í Reykjavík lýsir áhyggjum af því ástandi sem er að skapast í grunnskólum landsins vegna óánægju með kjör sín. Þetta kemur fram í ályktun félagsins sem var samþykkt í gær, 21. nóvember. Félagið telur nauðsynlegt að brugðist verði strax við þeirri stöðu sem uppi er áður en skaðinn verði alvarlegri en nú er.
Félag grunnskólakennara hefur í tvígang fellt kjarasamning á þessu ári. Skólastjórnendur í Reykjavík skorar á yfirvöld í Reykjavík að beita sér fyrir því hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga að gengið verði til samninga við FG.
Ályktun Félags skólastjórnenda í Reykjavík hljóðar svo:
Stjórn Félags skólastjórnenda í Reykjavík lýsir áhyggjum af því ástandi sem er að skapast í grunnskólum landsins vegna óánægju með kjör sín. Að undanförnu hafa borist fréttir af uppsögnum kennara vegna þessarar óánægju og það er mat félagsins að nauðsynlegt sé að bregðast skjótt við þessari stöðu áður en skaðinn verður meiri og alvarlegri en nú þegar er orðinn.
Stjórnin skorar á borgaryfirvöld að beita sér fyrir því að á vettvangi Sambands íslenskra sveitarfélaga að samið verði við FG á þann hátt að kennsla í grunnskólum geti talist samkeppnishæf við önnur þau störf sem standa til boða og mörg hver útheimta minni ábyrgð og álag en kennsla gerir.
F.h. Félags stjórnenda í Reykjavík,
Magnús Þór Jónsson formaður.