Brákarborg og Rauðhóll fengu verðlaun

Hvatningarverðlaun skóla- og frístundaráðs Reykjavíkurborgar voru veitt í gær. Einn minnsti leikskóli borgarinnar, Brákarborg, fékk verðlaun og einnig sá stærsti, Rauðhóll.
Á sjöunda hundrað leikskólastarfsmenn sóttu Leikskólaráðstefnu skóla- og frístundasviðs sem fram fór á Hótel Nordica í gær. Ráðstefnan er árlegur viðburður, haldin í tengslum við Dag leikskólans sem fagnað er 6. febrúar. Yfirskrift ráðstefnunnar var Gott er að leika saman, þá fær maður hugmyndir.
Á ráðstefnunni voru hvatningarverðlaun skóla- og frístundaráðs veitt fyrir framúrskarandi faglegt starf í leikskóla. Verðlaunin komu í hlut tveggja leikskóla, Brákarborgar og Rauðhóls í Norðlingaholti.
Brákarborg fékk viðurkenningu fyrir verkefnið Lausnarhringinn, sem er myndræn framsetning á helstu lausnum fyrir börn í samskiptum sín á milli, s.s. hugtökin „segja stopp“, „skiptast á“, „bjóða knús“, „bjóða öðrum að vera með“, „geta sagt fyrirgefðu“ og „fullorðnir hjálpa börnum/börn hjálpa fullorðnum".
Leiðskólinn Rauðhóll fékk viðurkenningu fyrir þróunarverkefnið Leyndarmál Rauðhólsgleðinnar sem felst í því að skrá niður skýra stefnu leikskólans um flæði og jákvæða sálfræði með þátttöku barna, foreldra og starfsfólks. Þá fékk Guðrún Sólveig leikskólastjóri í Rauðhóli sérstaka viðurkenningu fyrir frábæra faglega forystu.
Efni ráðstefnunnar
Aðalfyrirlesarar á leikskólaráðstefnunni voru Guðrún Ragnarsdóttir lektor og Svava Björg Mörk, aðjúnkt og verkefnastjóri á Menntavísindasviði HÍ. Þær fjölluðu í erindi sínu um hlutverk leikskólastarfsfólks við innleiðingu breytinga og mikilvægi forystu, náms og sjálfsrýni í því ferli. Þá miðluðu leikskólastjórar og leikskólakennarar þekkingu sín á milli í erindum.
Aðalheiður Stefánsdóttir, leikskólastjóri í Reynisholti, hélt erindi um gildi teymisvinnu undir fyrirsögninni „Röddin mín heyrist“ og Sunneva Svavarsdóttir, leikskólakennari í Hulduheimum, fjallaði um upplýsingatækni í kennslu ungra barna. Emilía Rafnsdóttir, ráðgjafi hjá Miðju máls og læsis, hélt erindi undir yfirskriftinni Lærdómssamfélag um mál og læsi í leikskólastarfi.
Myndbönd um sjálfseflingu
Á ráðstefnunni voru einnig frumsýnt myndbönd fyrir starfsfólk leikskólanna um leiðir til að vinna með sjálfseflingu sem er einn grunnþáttur nýrrar menntastefnu borgarinnar Látum draumana rætast.