Börn og ungmenni eru ekki piparkökumót

Fréttir|19. maí 2023

„Hvernig get ég unnið sem best fyrir félagsfólkið mitt, er spurningin sem ég vinn með á hverjum degi,“ segir Jónína Hauksdóttir, varaformaður Kennarasambandsins í nýjasta tölublaði Skólavörðunnar.

Jónína Hauksdóttir hefur gegnt embætti varaformanns KÍ í rétt rúmt ár. Hún kveðst ánægð með þetta fyrsta ár en viðurkennir að starfið hafi að sumu leyti komið á óvart. Nefndirnar sem hún hefur tekið sæti í eru margar – faglegar sem samfélagslegar, á hendi ríkis, sveitarfélaga og stofnana – og fundahöld eru stór hluti margra vinnudaga.

Dagskrá varaformanns er þétt alla daga og ekki heiglum hent að fá viðtalsbil en Skólavörðunni gafst tækifæri til viðtals rétt fyrir páska. Jónína er fyrst spurð hvernig það hafi verið að taka til starfa hjá KÍ.

„Þetta fyrsta ár hefur liðið ógnarhratt og verkefnin eru mörg og spennandi. Starfið er fjölbreyttara en ég átti von á og auðvitað er ég enn í lærdómsferli. Það voru líka töluverð viðbrigði að koma á vinnustað þar sem eru engin börn, en ég hef unnið í leikskólum allan minn starfsferil,“ segir Jónína og bætir við að viðtökurnar á skrifstofu Kennarasambandsins hafi verið afar góðar.

Óhefðbundið upphaf

Jónína og Magnús Þór Jónsson tóku formlega við embættum varaformanns og formanns KÍ í byrjun apríl fyrir ári. Þetta var óhefðbundið upphaf því venja er að formaður og varaformaður taki við að loknu þingi, en Covid kom í veg fyrir þinghald í mars 2022 og var því frestað fram á haust.

„Við fengum þingið í fangið og það var auðvitað stórt verkefni fyrir okkur. Starfsfólkið hjá KÍ kunni hins vegar vel að skipuleggja þing þannig að þetta gekk allt upp. Þingið okkar var að mínu mati vel heppnað, stefnuskjöl til fyrirmyndar og margar góðar ályktanir samþykktar. Þetta er það fóður sem við vinnum með út kjörtímabilið,“ segir Jónína. Eftir á að hyggja segir hún að þessi ferill hafi verið jákvæður því hún fékk strax mikla innsýn inn í hvernig KÍ starfar og virkar fyrir félagsfólk.

Jónína Hauksdóttir að stíga úr pontu á 8. Þingi KÍ 2022.

Jónína var þó enginn byrjandi í félagsmálum þegar hún ákvað að bjóða sig fram til varaformanns KÍ. Starfsferill hennar hefur, sem fyrr segir, verið innan leikskólans í 29 ár – lengst af sem skólastjóri eða síðan 1997.

„Ég hef frá árinu 1999 verið virk í félagsstarfi innan KÍ, fyrir Félag leikskólakennara fyrstu árin í minni svæðadeild og síðar fyrir Félag stjórnenda leikskóla. Eins og gengur þá vatt þetta upp á sig, ég sat í varastjórn FL eitt kjörtímabil og tók þátt í stofnfundi FSL. Ég var í stjórn og samninganefnd FSL um langt árabil eða frá stofnun félagsins og þar til ég tók við starfi varaformanns.“

Jónína segir að þegar henni hafi orðið ljóst að Anna María Gunnarsdóttir ætlaði ekki að bjóða sig fram til endurkjörs í varaformannsstól hafi hún ákveðið að taka stökkið. „Mér fannst ég búa yfir mikilli reynslu og færni til að gegna þessu starfi og ég var svo heppin að fólk treysti mér greinilega til verka og ég náði kjöri.“ Alls buðu átta sig fram til varaformanns og náði Jónína afbragðskjöri.

Félagsfólkið miðpunkturinn

Á sama tíma og Jónína tók við sem varaformaður sambandsins tók Magnús Þór Jónsson skólastjóri við formannsembættinu af Ragnari Þór Péturssyni.

„Það fannst sumum erfitt að það væru tveir skólastjórnendur komnir í forystu Kennarasambandsins,“ segir Jónína. „Ég held þó að það sé gott fyrir félagsfólk að hafa svona reynda stjórnendur í stafni núna. Ekki að þess þurfi alltaf, en þetta er gott í bland,“ bætir hún við og segir samstarfið ganga framar vonum. „Við vinnum mjög vel saman þrátt fyrir að vera ólík á margan hátt.“ Það sé þá gott að hafa formenn af ólíku skólastigi. „Ég hugsa að það gefi Kennarasambandinu meiri breidd, aukna þekkingu á því sem er í gangi hverju sinni og meiri skilning á því að við erum ekki öll eins og þurfum ekki endilega að gera allt eins.

Meginmarkmiðið er samt alltaf það sama frá hendi kennarans; að gera það besta fyrir nemandann.

Jónína segir að þótt hennar starfsferill hafi verið innan leikskólans gildi sömu reglurnar á skrifstofunni. „Við viljum bera hag okkar nemenda fyrir brjósti, við viljum þeim allt það besta og það er okkar að finna bestu leiðirnar til að mæta þeim. Það sama á við í starfi varaformanns nema að nú er það félagsfólk KÍ sem er miðpunkturinn. Hvernig get ég unnið sem best fyrir félagsfólkið mitt, er spurningin sem ég vinn með á hverjum degi.“

Jónína kveðst finna að loknu þessu fyrsta ári hversu þroskandi og gott það er að tengja sig við hin skólastigin. „Ég er ekki lengur í búbblu og það er bæði áhugavert og gefandi að kynnast grunnskólanum, framhaldsskólanum og tónlistarskólanum. Ég tel að þekking mín á einu skólastigi hjálpi mér að skilja hin skólastigin. Enda sér maður að í grunninn er starf okkar allra það sama. Hugmyndafræðin kann að vera mismunandi og kennsluaðferðir ólíkar, en í grunninn er starf kennarans alltaf það sama. Innan KÍ er einhugur um að sinna félagsfólki sem best og veita góða þjónustu á öllum sviðum og þá eru það ekki endilega skólastigin sem skipta mestu máli,“ segir Jónína.

Jónína Hauksdóttir og Magnús Þór Jónsson voru hyllt á 8. þingi KÍ sem fór í nóvember á síðasta ári. Þau tóku við embættum vorið 2022 og höfðu veg og vanda af skipulagi þingsins.

Mikil gróska innan kennara­stéttarinnar

Eitt af fjölmörgum verkefnum varaformanns er að stýra stjórn Rannsóknasjóðs KÍ. Sjóðurinn var stofnaður á þingi KÍ 2018 og hefur frá árinu 2019 veitt tugum þróunarverkefna styrki. „Það var sérlega ánægjulegt að heildarfjárhæðin sem sjóðurinn hefur til umráða á ári hverju var hækkuð á nýliðnu þingi. Nú höfum við sjö milljónir, í stað fimm áður, til að deila út.

Áherslusviðin taka breytingum ár frá ári og nú leggjum við áherslu á líðan hinsegin barna í skólum, móttöku og stuðning nýliða í kennslu og þróun kennsluhátta,“ segir Jónína og bætir við að það sé afar ánægjulegt að sjá gróskuna sem ríkir meðal kennarastéttarinnar; umsóknir bæði í Rannsóknasjóðinn og Sprotasjóð sýni að hugmyndaauðgi og ástríða séu einkennandi fyrir stéttina. „Þar eru allir á sömu blaðsíðunni, vilja hag nemenda sem bestan og leita leiða til að bæta starfsaðstæður og ánægju meðal samstarfsfólks og kollega.“

Jónína segir að á sama tíma og skólakerfið býr við fjölmargar áskoranir, svo sem kennaraskort, ónýtt húsnæði, álag og þreytu, þá sé hollt og gott að skoða allt það jákvæða sem er að gerast í skólamálum. „Það er nefnilega ákveðin helgun sem felst í að vera kennari. Kennarar hafa mikinn metnað fyrir starfinu sínu og við vitum að börn og ungmenni eru ekki eins og piparkökumót þar sem allir eru eins. Þess vegna er svo frábært hve margir kennarar vinna með opnum huga að því að finna nýjar leiðir til að nálgast nemendur, prófa sig áfram og þróa spennandi kennsluhætti.“

Það er nefnilega ákveðin helgun sem felst í að vera kennari.

Leiðsögn við nýliða í kennslu

Forystusveit KÍ tekur þátt í margs konar erlendu samstarfi og þar hefur varaformaðurinn nokkur hlutverk. Jónína situr í stjórn Norrænu kennarasamtakanna (NLS) ásamt formanni KÍ og formanni FF. Þá er hún varamaður í stjórn Evrópsku kennarasamtakanna (ETUCE). „Það er mikið um vera hjá bæði NLS og ETUCE og mörg spennandi verkefni í deiglunni. Erlenda samstarfið getur verið gjöfult fyrir okkur, það er áhugavert að kynnast hugmyndum annarra þjóða og ekki síður skemmtilegt að segja frá því góða og faglega starfi sem unnið er í íslensku skólakerfi.“

Jónína nefnir svokallað NTI-tengslanet, en hún tók þar við Önnu Maríu Gunnarsdóttur sem fulltrúi KÍ. NTI-tengslanetið (Nordic Teacher Induction) fjallar um stöðu nýrra kennara og mikilvægi stöðugrar starfsþróunar út starfsferilinn. Tengslanetið hefur kynnt niðurstöður verkefna á ráðstefnum NERA (Nordic Education Research Association), en tengslanetið skipa háskólar sem mennta kennara á Norðurlöndunum og í Eistlandi auk kennarasamtaka þessara landa.

„Markmiðið er að ráðast í rannsóknir og afla þekkingar um hvernig leiðsögn við nýja kennara geti virkað sem best. Þetta er afar verðugt verkefni því það er ekki bara á Íslandi sem kennarar hverfa úr starfi eftir tvö til fjögur ár. Það sama er uppi á teningnum á Norðurlöndunum, í Evrópu og sennilega víðar,“ segir Jónína.

Leiðsögn við nýliða er stórt mál því það þarf fleiri kennara og það þarf að búa svo um hnúta að þeir vilji gera kennsluna að ævistarfi. „Það þekkja flestir sem hafa byrjað í kennslu að það er hægt að lenda í holu fyrstu misserin. Þess vegna er svo mikilvægt að hafa leiðsögn við nýliða og ekki síður gott að kennarar skuli farnir að mennta sig í slíkri leiðsögn. Faglegur stuðningur er alltaf mikilvægur, ekki síst þegar fyrstu skrefin eru tekin í kennarastarfinu. Við bindum miklar vonir við að NTI-samstarfið muni leiða í ljós hvernig best verður haldið utan um nýliða í kennslu,“ segir Jónína.

Það eiga öll börn að fá að njóta sín og fá það sem þau þurfa á að halda

Öll börn eiga að fá að njóta sín

Hugðarefni Jónínu hefur um árabil verið að sjá gæðin í námi yngstu barnanna aukast. Hún segir brýnt að horft verði með alvöru á þær aðstæður sem börnum bjóðast í leikskólanum. „Við vitum það að börn eru of lengi í leikskólum yfir daginn og þau eru of mörg í of litlu rými, stundum eins og síld í tunnu. Þannig myndast ástand þar sem kennurum finnst þeir ekki ná að sinna sínum barnahópi eins og þeir vilja. Leikskólakerfið hefur stækkað hratt og börnin sem innritast eru yngri og yngri. Þetta kallar á fleiri kennara, en jafnvel þótt nýútskrifuðum kennurum fari fjölgandi þá dugar það ekki til. Þetta er mikilvæg umræða sem þarf að fara fram á samfélagslegum grunni.“

Jónína segist velta því fyrir sér hvað myndi gerast ef rými innan skólanna yrði aukið og börnum á hvern kennara fækkað. „Myndi þörf fyrir aðstoð á borð við sérkennslu og stuðning dragast saman ef kennarar gætu mætt hverju barni á forsendum þess?“ spyr Jónína og bætir við að umræða um bekkjarstærðir sé líka viðfangsefni sem þarf að skoða á öllum skólastigum.

„Kennarar á öllum skólastigum glíma við þetta sama verkefni; það er fjölda nemenda á hvern kennara sem gerir starfið flóknara og meira krefjandi og getur um leið haft áhrif á gæði kennslu og náms. Kennarar geta nefnilega ekki endalaust hlaupið hraðar í sínu starfi.“

„Ég mun svo líka þurfa að skoða hvernig ég get unnið vel fyrir hin skólastigin og ég er mjög meðvituð og spennt fyrir því,“ segir Jónína og nefnir í því sambandi hið stóra verkefni barna- og menningarmálaráðuneytis er varðar skólaþjónustu, sem kennarasambandið kemur að. „Þetta er verkefni sem maður myndi vilja fylgja eftir og sjá blómstra því þetta á að vera öllum nemendum til hagsbóta. Ekki bara þeim hluta nemenda sem þurfa auka aðstoð og faglega hjálp. Það eiga öll börn að fá að njóta sín og fá það sem þau þurfa á að halda,“ og bætir við þetta málefni sem önnur af faglegum toga séu rædd reglubundið á fundum framkvæmdastjórnar Skólamálaráðs.

Jónína segir jafnframt að málefni tónlistarskólans séu mjög í fókus um þessar mundir. „Gildi tónlistarnáms er óumdeilt og við vitum að á hverjum degi er unnið frábært starf í öllum áttatíu tónlistarskólunum hringinn um landið. Tónlistarkennarar hafa mátt búa við löggjöf um tónlistarskóla sem er löngu úrelt. Það horfir þó til betra vegar með tillögu um tónlistarstefnu og frumvarp til tónlistarlaga sem nú liggur fyrir þinginu,“ segir Jónína og bætir við: „Við bindum vonir við að lögin verði að veruleika og verði til þess að efla tónlistarskólana faglega og um leið bæta starfsaðstæður tónlistarkennara. Það er löngu tímabært að skapa tónlistarskólunum skýran og nútímalegan ramma til að starfa eftir.“

Rödd kennara þarf að heyrast

Boltarnir eru margir á lofti og Jónína segist ekki hafa tölu á öllum þeim nefndum og ráðum sem hún á sæti í. „Ég er svo lánsöm að ég er rétt að byrja og á enn eftir að kynnast mörgu í starfinu. Það er mjög mikið um að kallað sé eftir aðkomu KÍ í skóla- og menntamálum á hendi hins opinbera. Þótt þetta feli í sér mikla vinnu þá er þetta um leið gleðiefni, að kallað sé eftir röddum kennara. Við viljum jú láta rödd okkar heyrast og miðla faglegri þekkingu stéttarinnar sem víðast. Það er leiðin til árangurs,“ segir Jónína Hauksdóttir, varaformaður KÍ.

Greinin birtist í 1. tbl. Skólavörðunnar 2023.