Börn eru heimspekingar í eðli sínu

Hanna Rós Jónasdóttir leikskólakennari er félaginn í vorútgáfu Skólavörðunnar.
Ég er kennari vegna þess ...
að það gefur mér mikið að vinna með fólki, sérstaklega börnum. Börn eru heimspekingar í eðli sínu og það að miðla þekkingu og kenna þeim í gegnum leikinn er ótrúlega gefandi. Engir tveir dagar eru eins, viðfangsefnin óteljandi og kennslan fer bæði fram úti og inni.
Besta stund vikunnar ...
Fyrsti kaffibollinn á laugardagsmorgni er efstur á lista. Á þriðjudagskvöldum dansa ég jazzballet í frábærum kvennahópi sem er mjög endurnærandi fyrir líkama og sál. Ég reyni líka að fara í göngutúra nokkrum sinnum í viku sem hreinsar hugann eftir viðburðaríka daga. Í vinnunni eru bestu stundir vikunnar þegar ég sé barn ná aukinni færni í því sem við erum að æfa hverju sinni, hvort sem er í leik eða samskiptum, og sé gleðina í andlitinu þegar það upplifir stoltið af sjálfum sér.
Þessu myndi ég vilja breyta ...
Ég myndi vilja fækka börnum inni á deildum og auka þar með leikrýmið og minnka áreitið og hávaðann. Börn dvelja stóran hluta dags í leikskólanum og það þarf að huga betur að þessum þáttum. Einnig myndi ég vilja sjá meiri skilning hjá sveitarfélaginu á starfsaðstæðum kennara í leikskólanum og úrbætur þeim tengdar.
Börn eru heimspekingar í eðli sínu og það að miðla þekkingu og kenna þeim í gegnum leikinn er ótrúlega gefandi.
Hanna Rós Jónasdóttir, leikskólanum Lundarseli á Akureyri.
- Félaginn er fastur dálkur í Skólavörðunni.