Börn eru einstakir sendiherrar

FAST 112 hetjurnar fræða aðra um einkenni slags og rétt viðbrögð.
Nýtt verkefni, FAST 112 hetjurnar, er alþjóðlegt verðlaunaátak sem fræðir nú fjölskyldur um einkenni slags (heilablóðfalls) og rétt viðbrögð við þeim. Þróað hefur verið kennsluefni sem er sniðið að þörfum 5-9 ára barna en í því kenna skemmtilegar ofurhetjur börnunum mikilvæga lífsleikni sem þau miðla svo til fjölskyldunnar. Nemendur læra að þekkja einkennin og hvernig eigi að hringja í Neyðarlínuna.
Sláandi staðreyndir sýna að einn af hverjum fjórum fær slag á lífsleiðinni, sem þýðir að nánast allar fjölskyldur þekkja til þess. Það er því afar mikilvægt að börn læri að þekkja einkennin til að geta brugðist við og jafnvel bjargað mannslífum. Hið jákvæða er nefnilega það að það er hægt að meðhöndla slag ef fólk kemst á sjúkrahús í tæka tíð.
Kennsluefni í boði
Kennsluefnið um FAST 112 hetjurnar er þróað af menntavísindasviði Makedóníuháskóla í Grikklandi og hafa fjölmargir sérfræðingar komið að staðfæringu þess og yfirlestri. Innleiðingu hérlendis verður fylgt eftir með rannsóknum líkt og tíðkast erlendis. Tæplega 6.000 kennarar frá nærri 1.900 skólum víða um heim hafa þegar tekið þátt í verkefninu og frætt um 72.000 börn. Kannanir sýna að foreldrar og kennarar voru ánægðir með efnið og fannst það aðgengilegt í framkvæmd – og börnunum fannst það skemmtilegt og gripu boðskapinn á lofti.
Kennslan er einföld og er skipt í fimm kennslustundir. Kennarar þurfa ekki mikinn undirbúning, aðeins að skrá bekkinn sinn á vefsíðunni fastheroes.com og lesa eina rafbók í hverri kennslustund. Rafbókin leiðir svo kennarann og börnin í gegnum kennslustundina. Hvert barn fær afhent veglega verkefnabók stútfulla af leikjum og skemmtilegu efni. Kennslan fer fram í gegnum skemmtilegar teiknimyndapersónur, Friðrik fyndna fés, Arnór arm og Soffíu söngkonu, sem eru ofurhetjur á efri árum, og barnabarn þeirra, Tómas tímanlega. Einnig eru leikir, verkefni og söngur þar sem þau læra m.a. að hringja í Neyðarlínuna. Börnin eru hvött til að miðla þekkingu sinni áfram, til að mynda með því að senda ömmu og afa falleg póstkort með gagnlegum upplýsingum.
Ég tek þátt í verkefninu vegna þess að ég vil gefa af mér og veita þeim öryggi í lífi og námi.
Þekking barnanna getur bjargað lífum
Á alþjóðlegum árveknidegi um slag þann 29. október síðastliðinn var athöfn í leikskólanum Brákarborg, en hann er fyrsti skólinn til að innleiða kennsluefnið í starf sitt. Þar starfar Arnrún Magnúsdóttir leikskólakennari en hún hóf kennslu á verkefninu nú í haust og gekk umsvifalaust inn í FAST 112 hetjuteymið. Skólavarðan ræddi við Arnrúnu og byrjaði á að spyrja hana af hverju hún væri að taka þátt í verkefninu? „Ég brenn fyrir forvörnum fyrir börn frá fæðingu til 10 ára og hef mikla reynslu af því að eiga samtal við þau um forvarnir af ýmsu tagi. Ég tek þátt í verkefninu vegna þess að ég vil gefa af mér og veita þeim öryggi í lífi og námi. Ég finn hversu mikilvægt það er að geta útskýrt fyrir börnum, á einfaldan hátt, allt hvað forvarnir varðar, sama hvort um ræðir eitthvað í umferðinni, brunavarnir, tannhirðu eða ofbeldi. Nýjasta verkefnið, FAST 112, er einstakt og það hefur reyndar mjög persónulega tengingu. Verkefnið gengur út á að kenna börnum að þekkja einkenni slags og töfranúmerið 1-1-2. Sjálf fékk ég slag árið 2016 sem hafði mjög mikil áhrif á heilsuna, en ég nánast lamaðist vinstra megin og málið brenglaðist um tíma. Ég þurfti mikla endurhæfingu, m.a. að læra að ganga upp á nýtt. Þegar heilsu var náð fór ég að vinna í leikskólanum Brákarborg og það er besta BARNA-vítamín sem lífið hefur fært mér,” segir Arnrún og greinilegt er að hún brennur fyrir málefninu.
Nú er þetta mál sem snertir mjög marga og oft erfitt að koma upplýsingum um rétt viðbrögð á framfæri.
Börnin eru einstakir sendiherrar
Arnrún er ekki í vafa um mikilvægi barnanna í þessu samhengi: „Í átaki sem þessu eru börnin svo sannarlega einstakir sendiherrar. Þetta átak er skemmtilega framsett, einfalt, líflegt og útskýrir einkenni á þann hátt sem börnin skilja. Börnin hafa rödd í fjölskyldum sínum, rödd sem hljómar til dæmis í eyru ömmu og afa á annan hátt en nokkur annar getur náð til þeirra. Nemendur mínir eru spenntir fyrir næsta tíma og tala um persónurnar sem einkennin eru tengd við. Börn eru góðir boðberar og fljót að færa þessa fræðslu, sem og annars konar fræðslu, yfir í leik hjá sér.“
Hvaða skilaboðum viltu koma á framfæri við kennara sem lesa þessa umfjöllun?
„Mín skilaboð eru áríðandi. Tíðni slags er ótrúlega há og hver sem er getur lent í því að fá slag. Mikilvægi þess að allir þekki einkenni er gríðarlegt og hver mínúta skiptir öllu máli. Við fræðum börn um mikilvægi þess að tannbursta sig, nota bílbelti og fikta ekki með eld, en þessi fræðsla er alls ekki síður mikilvæg. Þekking þeirra á þessum málaflokki gefur þeim yfirburði í sjálfstæði og samfélagsþátttöku. Sjálf þekki ég þá reynslu að hafa reynt að hunsa einkennin þegar þau komu hjá mér (andlitið seig niður vinstra megin og málið ruglaðist) en eiginmaður minn er mín FAST 112 hetja!“