Bókaspjall með börnum um myndabækur á norrænum tungumálum

Kennarar eru hvattir til að kynna sér vefinn og sækja þar efni sem er öllum frjálst til afnota.
Norræni bókagleypirinn veitir aðgang að ókeypis náms- og stuðningsefni um myndabækur frá Norðurlöndum á öllum norrænu tungumálunum. Vefurinn á að auðvelda fullorðnum lestur barnabóka frá hinum Norðurlöndunum með börnunum. Samið verður náms- og stuðningsefni um nýjar norrænar myndabækur sem sýna börnunum greinilega tengingu við norrænan bókafjársjóð undir handleiðslu fullorðna fólksins.
Markmið verkefnisins er að hvetja til lesturs á norrænum barnabókum, kynna norrænar barna- og unglingabækur fyrir fullorðnum lesendum og börnum og gera þær aðgengilegri.
Norrænn starfshópur semur stuðningsefnið en það eru barnabókaverðir, myndhöfundar, rithöfundar, kennarar og aðrir sem staðið hafa fyrir lestrarátaki í löndunum. Þær myndabækur sem fjallað verður um í náms- og stuðningsefninu hafa allar verið tilnefndar til barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs og er því eingöngu boðið upp á vandað efni.
Kennarar eru hvattir til að kynna sér vefinn og sækja þar efni sem er öllum frjálst til afnota, s.s. við undirbúning á bókaspjalli með skólabörnum, á bókasöfnum eða heima.
Slóðin er bokslukaren.org/is/