Bókanir næsta haust og afslættir í sumar

Fréttir|13. maí 2022

Orlofssjóður KÍ vekur athygli félagsmanna á að kynna sér kjör og afslætti er kemur að ferðalögum í sumar. Þá verður opnað fyrir bókanir í haust næstkomandi þriðjudag.

Opnað verður fyrir bókanir á eignum Orlofssjóðs, fyrir tímabilið 26. ágúst til 10. janúar 2023, klukkan 18 þriðjudaginn 17. maí, næstkomandi.

Reglan fyrstur kemur, fyrstur fær gildir.Á sama tíma verður opnað fyrir bókanir í eina nótt í flestum eignum Orlofssjóðs sumarið 2022. Aðrar flakkaraeignir verða áfram með tveggja nátta lágmarksleigu í sumar. Veturinn 2022-2023 verður helgarleiga áfram bundin frá klukkan 16 á föstudegi til klukkan 18 á sunnudegi. Þetta á við um orlofshús á Flúðum, Bifröst, í Kjarnaskógi, á Siglufirði, í Vestmannaeyjum og á Laufásvegi í Stykkishólmi.

Þá vill Orlofssjóður vekja athygli á eftirfarandi

  • Félagsmenn geta keypt ferðaávísun með afslætti til að greiða fyrir hótelgistingu víðs vegar um landið. Ávísunina þarf að kaupa á Orlofsvefnum og þar eru einnig nánari upplýsingar.   
  • Félagsmenn geta nýtt gjafabréf hjá Flugfélaginu Erni fyrir sig og maka/börn. Hægt er að kaupa gjafabréf með afslætti hjá Icelandair, Flugfélaginu Erni og Úrval-Útsýn. Félagsmenn geta keypt Veiðikortið og Útilegukortið á afsláttarkjörum.  
  • Félagsmenn geta sótt um niðurgreiðslu vegna gönguferða og bátsferða (á ekki við ferjur á borð við Baldur og Herjólf) á vegum viðurkennds ferðaskipuleggjanda. Endurgreiðslan er 15% af andvirði ferðar en þó að hámarki 7.500 kr./15 pt. Félagsmenn þurfa að senda reikning/greiðslukvittun vegna ferðarinnar, kennitölu og númer bankareiknings á orlof@ki.is.   
  • Hinir vinsælu Frímannsafslættir eru í boði fyrir félagsmenn  

Opnað verður fyrir bókanir á tímabilinu 11. janúar til byrjun júní 2023 í byrjun september næstkomandi.

Að lokum er minnt á netfang Orlofssjóðs, orlof@ki.is ef einhverjar spurningar vakna. Hægt er að skoða og bóka á Orlofsvef KÍ.