Bókanir hefjast á nýjum bústöðum OKÍ fyrir austan

Fréttir|26. júní 2023

Það er allt klárt fyrir austan! Opnað verður fyrir bókanir á nýjum bústöðum Orlofssjóðs í Úlfstaðarskógi á morgun, þriðjudaginn 27. júní, klukkan tólf á hádegi.

Bústaðirnir eru nýbyggðir og með svefnpláss fyrir 6 til 8 manns, stórt opið rými, glæsilegan pall og heitan pott. Fyrsti dagur leigu er föstudagurinn 30. júní. Bústaðirnir verða svo leigðir út í viku í senn það sem eftir lifir sumartímabilsins.

Húsin eru ætluð til útleigu allt árið um kring og verða helgarleigur í boði yfir haust- og vetrartímanum.

Við vonum að félagar gleðjist yfir viðbót á þessu veðursæla svæði og geti nýtt húsin til að hlaða orkustöðvarnar og kúpla sig frá daglegu amstri.

Hægt er að skoða bústaðina betur í myndagalleríi hér fyrir neðan. 

 

Uppfært klukkan 14:40

Mikið álag hefur verið á Orlofsvefnum í dag og viðtökur við nýjum húsum fyrir austan hreint út sagt stórkostlegar.