Bókanir á flugi hjá Flugfélaginu Ernir einfaldaðar

Fréttir|27. maí 2016

Breytingar hafa verið gerðar á því hvernig félagsmenn KÍ geta keypt og bókað flugmiða hjá Flugfélaginu Ernir. Áfram verða félagsmenn fyrst að kaupa flugmiða í orlofskerfinu Frímann en í stað þess að bóka í framhaldi flug með því að hringja í flugfélagið, fá félagsmenn nú sendan rafrænan bókunarkóða sem þeir geta nýtt til að bóka flug á netinu. Á heimasíðu flugfélagsins segir um þá framkvæmd:

Til að bóka flug þarf að fara inn á vefinn www.ernir.is og velja „Stéttafélagsmiði“ í reitnum „Tegund fargjalds“. Því næst þarf að velja dagsetningu, flugleið og skrá inn kennitölu félagsmanns og bókunarkóða sem jafnframt er greiðsla fyrir flugið.

Það er von Orlofssjóðs KÍ að að með þessu reynist félagsmönnum einfaldara að nýta sér þau afsláttarkjör sem samningur sjóðsins og flugfélagsins tryggir félagsmönnum.

Rétt er að vekja athygli á að eftir 6. júní 2016 mun Flugfélagið Ernir innheimta 2.500 kr. gjald ef bókað er í síma sem og 3.500 kr. gjald ef breytingar eru gerðar á bókun.